afbrigði.
Virðulegur forseti. Ég kem hér aftur upp og lýsi yfir vonbrigðum mínum með það með hvaða hætti þetta mál kemur hér inn í þingið og þá kröfu sem sett er fram um að málið sé klárað fyrir jólahlé þegar við blasir að 11 áætlaðir þingfundardagar, með deginum í dag, eru til ráðstöfunar nema breyting verði gerð á starfsáætlun, sem er auðvitað sjálfsagt, verði sú ákvörðun tekin. Þetta er risamál með 14 EES-innleiðingum sem á einhvern veginn að hraða hér í gegn, verður væntanlega gefinn mjög takmarkaður umsagnartími þeirra aðila sem leitað verður umsagna hjá, 14 innleiðingar, m.a. með flóknustu mál sem á fjörur Íslands hefur rekið frá Brussel. Ég mun greiða atkvæði gegn því að þetta mál verði tekið hér á dagskrá með þessum hætti, sérstaklega í ljósi þeirrar kröfu sem vofir yfir, að málið skuli klára fyrir þingfrestun nú í aðdraganda jóla.