lögheimili og aðsetur o.fl.
Virðulegur forseti. Við ræðum þetta frumvarp í fyrsta skipti. Það eru ákveðin atriði sem mér finnst ég þurfa að fá upplýsingar um áður en ég get sjálfur, prívat og persónulega, haldið áfram með þetta mál. Það fyrra varðar það að ef mig misminnir ekki þá voru haldnir fundir í vor með ráðamönnum og m.a. fulltrúum sveitarfélaga um það hvort þau væru samþykkt því að fólk fengi að búa í svokölluðu óleyfishúsnæði ef ákveðin skilyrði væru uppfyllt. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég fékk í samtölum mínum við fulltrúa sveitarfélaga í framhaldi af þessum fundum sem áttu sér stað, eða kannski bara fundi, þá voru sveitarfélögin því mjög andvíg að það yrði gert. Bæði töldu þau að það væri verið að taka skipulagsvaldið af sveitarfélögum og það væri í raun og veru búið að skipuleggja sveitarfélögin með þeim hætti að atvinnuhúsnæði væri á einum stað, íbúðarhúsnæði á öðrum stað og innviðirnir væru á einum stað en ekki á öðrum. Ég upplifði því ekki annað en að sveitarfélögin myndu bara ekki undir neinum kringumstæðum samþykkja að það væri gefinn einhver afsláttur af byggingarreglugerðum sem þau hafa sjálf þurft framfylgja í áratugi. Ég velti því þá fyrir mér er: Er þetta sama mál og þá var talað um og er verið að gera þetta í óþökk sveitarfélaganna?