lögheimili og aðsetur o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans svar. Ég get svo sem alveg fallist á það að við verðum að hjálpa öllum til að hafa þak yfir höfuðið, það er bráðnauðsynlegt. Ég fagna því að sjálfsögðu að ráðherra segi að við viljum þetta ekki, þetta eigi þá að vera tímabundið. Ég upplifði það líka bara í umræðunni í gær, og eins og hæstv. ráðherra nefndi hér, að það þyrfti eitthvað svona að koma til bjargar stöðu Grindvíkinga vegna þess að sú staða er slæm og erfið úrlausnar. Það er erfitt að finna samastað fyrir heilt sveitarfélag og mun að sjálfsögðu taka einhvern tíma. En ég fæ smá hnút í magann þegar ég upplifi það að forsendan fyrir því að við getum staðið með Grindvíkingum eins og við myndum vilja sé að við samþykkjum þetta mál. Úrlausn til handa Grindvíkingum þarf að gerast hratt en ég hefði frekar viljað að það hefði verið sérstakt mál sem varðaði stöðu Grindvíkinga og við gætum verið að klára bara í þessari viku eða næstu, en við þurfum auðvitað talsverðan tíma held ég til að ræða þetta mál ofan í kjölinn. Þetta er stórt og mikið mál að fjalla um og auðvitað talsvert öryggismál. Við þurfum bara að rýna þetta verulega. Það skiptir máli að við erum búin að upplifa eldsvoða eftir eldsvoða sem hafa orsakað það að fólk hefur dáið. Ég vil því ekki vera ábyrgur fyrir því að við séum að gefa einhvern afslátt af öryggismálum fólks sem er í þeirri stöðu að geta ekki borgað 300.000, 400.000 í húsaleigu á mánuði.