154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

lögheimili og aðsetur o.fl.

542. mál
[16:23]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það sem ég nefndi með skráningu Grindvíkinga tímabundið er einfaldlega að ef við hefðum haft nægan tíma þá hefði það auðvitað verið hluti af frumvarpinu en nefndi að þar sem við erum með lögin hér opin þá munum við óska eftir samtali við nefndina um að forma þetta. Við eigum það formað en formsins vegna þá hefði það tekið allt of langan tíma ef við hefðum farið með það inn í gegnum vinnu við frumvarpið sjálft og tímalínan kannski ekki alveg með okkur, þannig að við teljum að það sé mikilvægt að taka það samtal upp við nefndina. Það breytir því ekki að nefndin getur alltaf gefið nefndarálit um það eina tiltekna atriði og lagt til inni í nefndinni og afgreitt. Það er í mínum huga ekki vandamál.

Varðandi síðan frumvarpið í heild sinni þá veit ég að til að mynda slökkviliðið, ekki síst hérna á höfuðborgarsvæðinu, hefur kallað mjög eftir því að fá þessar auknu heimildir sem fyrst og ég held að ráðherra hafi verið svo bráður að taka undir það í einhverju samtali í við fjölmiðla í gær, en það er auðvitað ekki mitt að samþykkja það. Það er auðvitað bara þingsins að fara yfir það og sjá hversu fljótt og vel er hægt að afgreiða þetta. Ég vil bara hvetja þingið og nefndina til dáða og ef það er hægt að klára þetta hratt og vel þá skiptir það máli, það eru miklir hagsmunir undir. En auðvitað þurfa menn að vanda sig við þá vinnu.