lögheimili og aðsetur o.fl.
Frú forseti. Það er ánægjulegt að sjá að hér er frumvarp sem snertir margt af því sem bæði slökkvilið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafa verið að þrýsta á að sé gert til breytinga til að auka öryggi þeirra sem búa í óleyfisbúsetu í atvinnuhúsnæði. En því miður nær þetta frumvarp bara eins langt og það nær, þ.e. það tekur ekki á því að við erum að gefa afslátt af lögum og reglum sem kosta mannslíf.
Það hlýtur að vera skrýtið að sjá í lögum að við erum að fjalla um hluti þar sem fólk er að gera eitthvað í óleyfi. Við erum í rauninni að gefa leyfi til að vera með óleyfi. Það hljóta að vera með skrýtnari lögum þegar við erum farin að setja lög um það sem fólk er að gera og við leyfum því að gera það ólöglega.
En það er algerlega óverjandi að þúsundir einstaklinga þurfi að búa við hættulegar og ómannsæmandi aðstæður. Það er nú þannig að þeir sem búa í þessu húsnæði eru flestir hverjir ekki íslenskir ríkisborgarar og þeir íslenskir ríkisborgarar sem búa þarna eru oft þeir sem hafa hvað minnst á milli handanna. Maður spyr sig: Ef við hefðum þurft að upplifa jafnmörg dauðsföll íslenskra ríkisborgara í óleyfishúsnæði, væru ekki komnar hér alvöruneyðaraðgerðir og neyðarástand? Það að við séum ekki komin með leiðir og frumvörp til að tækla þetta, að fólk megi einfaldlega ekki og geti ekki og það sé hreinlega bannað að leigja út íbúð eða atvinnuhúsnæði til aðseturs á meðan fólk er að deyja við þessar aðstæður, er okkur Íslendingum til skammar.