154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

lögheimili og aðsetur o.fl.

542. mál
[16:28]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður talar um að það sé ekki gott að koma hér og breyta lögum og heimila eitthvað sem er í óleyfi sem geti síðan valdið fólki tjóni. Ég get alveg tekið undir með hv. þingmanni um það, enda er það ekki tilgangur þessara laga. Hér var settur starfshópur á laggirnar og síðan annar sem fór sérstaklega ofan í það og var gerð sérstök úttekt samhliða á því húsnæði sem hér er. Í ljós kom að meiri hlutinn af þessu húsnæði var í þokkalegu og betra ásigkomulagi og uppfyllti meiri kröfur en menn höfðu óttast. Engu að síður höfum við séð fjölmörg dæmi um hið gagnstæða. Þess vegna er svo mikilvægt að viðurkenna að hér eru á milli 2.000 og 3.000 manns, 2.000 hérna á höfuðborgarsvæðinu, væntanlega 3.000 í heild sinni, sem búa við þessar aðstæður. Þá er mikilvægt í mínum huga að segja: Hvernig ætlum við að bregðast við því? Hinn valkosturinn er að henda fólkinu út úr þessu húsnæði og láta það þá ekki hafa neitt húsnæði. Það finnst mér ekki góður valkostur. Við verðum að gefa okkur einhvern tíma í það. Ég vil þess vegna spyrja hv. þingmann hvort hann sé með einhverjar aðrar hugmyndir um það.

Hér er verið að leggja til tímabundið að heimila þetta með kröfum um að uppfylla brunavarnir, um að uppfylla kröfur byggingarfulltrúa um íbúðarhúsnæði o.s.frv. Hér erum við, held ég, að reyna að ganga skynsamlega fram og algjörlega í anda þeirra tillagna sem það fólk sem best þekkir til lagði til í þessum starfshópi. En ég vildi bara koma hingað upp og segja: Hvað annað er hv. þingmaður með í huga um hvernig við eigum að bregðast við þessum vanda? Það er sannarlega hópur af fólki sem býr við þessar aðstæður. Eigum við þá ekki að reyna að lagfæra þær aðstæður en gera það tímabundið og á sama tíma byggja nægjanlega mikið húsnæði, því að það er jú lausnin?