154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

lögheimili og aðsetur o.fl.

542. mál
[16:30]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið og spurninguna sem hæstv. ráðherra svaraði sjálfur í lokaorðum sínum, sem er einmitt að það þarf að byggja meira húsnæði. En því miður virðist ríkisstjórnin ekki vera með nægilega mikið af plönum og aðgerðum til að auka það sem er verið að byggja. Þvert á móti er ríkisstjórnin að draga lappirnar í því að eiga við verðbólguna og hátt vaxtastig, sem er akkúrat það sem stoppar að það sé verið að byggja húsnæði. Þannig að ég spyr bara ráðherra á móti: Hvað ætlar ráðherra að gera til þess að það sé farið að byggja hér af einhverju ráði en ekki bara segja: Við erum með starfshóp um þetta og hitt? Ég er hins vegar algerlega sammála hæstv. ráðherra þegar kemur að því að það sem hér í þessu frumvarpi stendur, það er allt af hinu góða. En það að við skulum þurfa að bíða í sjö ár eftir því að við útvegum fólki eitthvert annað húsnæði og við setjum einhverjar reglur sem banna algerlega að leigja út slíkt húsnæði, það er allt of langur tími að mínu mati.