lögheimili og aðsetur o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir skjót og skýr svör. Ég hafði skilið hann þannig að hann væri ekki sérlega hrifinn af því sem hér stæði til akkúrat núna. Þess vegna ætla ég að spyrja hann sömu spurningar og hæstv. ráðherra var með: Hvað annað frekar en þetta? En ég sé á þessum svörum að hann teldist að líkindum fyllilega bær til að taka við embætti innviðaráðherra ef þannig skipuðust nú skyndilega veður í lofti eða eftir næstu kosningar. En ég ítreka líka það sem kom fram á fundi okkar með ráðherra í umhverfis- og samgöngunefnd að svona heimildir þekkjum við frá ýmsum nágrannalöndum. Við þekkjum frá t.d. Bandaríkjunum þessi frægu loft sem eru byggð, ekki sem íbúðir upphaflega en breytt í mjög aðlaðandi og spennandi valkosti fyrir ungt fólk, listafólk og fleiri, og ég bind vonir við að við getum gert gott úr þessu, gert áhugaverð rými úr þessu. Ég held að öryggisþátturinn sé sá mikilvægasti og að við búum hvergi til slysagildrur eða flækjufót varðandi það að komast út ef eitthvað brestur á. Þannig að ég er sáttur við þessa reddingu. Þetta er auðvitað til skammtímaredding í ljósi ýmissa ólíkra þátta sem hafa dunið hér yfir og fjölgað þeim sem hér dvelja alveg óheyrilega hratt og aðrar hugmyndir hefði ég ekki lagt fram sjálfur í þeim sporum sem hæstv. innviðaráðherra er. Ég þakka fyrir umræðuna og ég vonast til þess að þetta verður til blessunar og við sleppum við það sem við höfum því miður þurft að horfa upp á, slys og ógæfu.