viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, ETS-kerfið. Í frumvarpi þessu er lagt til að kaflar og ákvæði núgildandi laga um loftslagsmál sem fjalla um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, ETS-kerfið, verði færð í sérlög um ETS-kerfið. Tilgangurinn með þessari breytingu er að auka skýrleika og aðgreina betur löggjöf sem fjallar um ETS-kerfið frá öðrum ákvæðum laga um loftslagsmál, enda er löggjöf sem varðar ETS-kerfið eingöngu innleiðing á löggjöf sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn.
Í frumvarpi þessu verða jafnframt innleiddar þrjár EES-gerðir á sviði loftslagsmála sem breyta ETS-kerfinu. Um er að ræða í fyrsta lagi breytingu hvað varðar flugstarfsemi, tilskipun 2023/958 í, öðru lagi breytingar varðandi staðbundinn iðnað, sjóflutninga og byggingar, vegasamgöngur og smærri iðnað með tilskipun 2023/959, og í þriðja lagi eru gerðar breytingar á kröfum um vöktun, skýrslugjöf og sannprófun á losun skipafélaga í reglugerð 2023/957.
Umhverfismál hafa verið hluti af gildissviði EES-samningsins allt frá gildistöku hans og hefur tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, ETS-tilskipunin, verið ein meginstoða umhverfislöggjafar Evrópusambandsins. Tilskipunin var upphaflega tekin upp í EES-samninginn og innleidd í íslensk lög árið 2007. Síðan þá hafa allar breytingar á tilskipuninni verið teknar upp í EES-samninginn og innleiddar í íslensk lög. Reglur ETS-kerfisins hafa gilt fyrir flugrekendur frá árinu 2012 og rekstraraðila í staðbundnum iðnaði á Íslandi frá árinu 2013 þegar álframleiðsla og járnblendi voru felld undir kerfið. ETS-kerfið er lykilbreyta hvað varðar að ná samdrætti í losun en um 40% losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi fellur undir kerfið.
Svona til þess að fara aðeins í grunnhugmynd ETS-kerfisins þá er í rauninni um að ræða þrjú kerfi sem við erum að vinna eftir. Fyrst er það LULUCF, sem er landgræðsla og skógrækt, og svo er það ETS-kerfið og þar erum við í samstarfi við EES-ríkin. ETS-kerfið er þannig þegar kemur að okkur að þar undir er millilandaflugið og millilandasiglingar og síðan stóriðjan. Hugsunin er sú að það sé sama hvar þú ert að reka stóriðjuna eða flugið á EES-svæðinu, hvort sem þú ert á Íslandi eða í Noregi, Belgíu, Frakklandi eða hvað það er, þú eigir að keppa undir sömu reglum. Sú fyrirmynd að fyrirtækin fái mengunarkvóta, upphaflega fyrirmyndin að því kemur reyndar frá í Bandaríkjunum en eitt af því sem er nefnt sérstaklega þegar er verið að tala um fyrirmyndir á þessu sviði er íslenska aflamarkskerfið. Þá er í rauninni hugsunin að minnka losun, út á það gengur þetta, þannig að upphaflega fá fyrirtækin endurgjaldslausan kvóta eða heimildir sem síðan annaðhvort minnka eða fyrirtæki munu þurfa að greiða fyrir þær. Þetta á að vera kerfi til þess að minnka losun, það er alveg skýrt, en það þýðir ekki að einstök fyrirtæki geti ekki gert eitthvað annað, þ.e. þau geta aukið losun en þau þurfa þá að greiða fyrir.
Það kom á mbl.is mjög skýrt dæmi um þetta þann 27. nóvember síðastliðinn. Þar er frétt með fyrirsögninni: Innleiða breytingar sem minnka olíunotkun og losun. Þar er viðtal við forystumenn Eimskips sem fara yfir það að þeir séu að innleiða breytingar á gámasiglingakerfi félagsins með það að markmiði að einfalda siglingakerfið, fækka viðkomum í höfnum og stytta siglingaleiðir og þar með minnka kolefnislosun og lækka kostnað. Þetta er hvatinn sem er til staðar og þeir endurskipuleggja sínar siglingar og siglingaleiðir til að koma til móts við þetta og munu með þessu, ef marka má þessa frétt, fækka sigldum sjómílum um rúmlega 40.000, eða ríflega 5%. Auk þess mun olíunotkun minnka um 5.000 tonn og losun koltvíoxíðs minnka um 15.000 tonn, eða 7% . Borið saman við árið 2022 var samdráttur í olíunotkun þá tæp 11.000 tonn, eða 14%, þannig að þarna sjáum við í rauninni áhrifin af þessu fyrirkomulagi í raunheimum.
Síðan er það þriðja kerfið, ESR-kerfið, sem er á beinni ábyrgð Íslands og er ekki til umræðu hér en ég hvet hv. þingmenn til að kynna sér það vel vegna þess að það er nokkuð sem við þurfum að hafa augun á.
Frá upphafi hefur íslenskt atvinnulíf sóst eftir að vera í þessu fyrirkomulagi vegna þess að menn hafa haft áhyggjur af því að ef við værum ekki í því fyrirkomulagi gæti orðið snúið fyrir okkur og erfitt að vera með séríslenskar reglur. Auk þess eru auðvitað fyrirtæki innan EES að keppa við fyrirtæki innan EES og það væri náttúrlega miklu meira flækjustig ef menn ætluðu að vera á einhverjum allt öðrum stað en þær þjóðir sem við erum í sem mestum samskiptum og oft samkeppni við, og þá er ég að vísa til EES-svæðisins. Þess vegna á þetta sér þessa löngu forsögu sem ég vísaði til áðan. Þetta var innleitt í íslensk lög árið 2007 og síðan komu flugrekendur inn 2012 og staðbundinn iðnaður, þ.e. álframleiðsla og járnblendi, árið 2013.
Síðan hefur verið dregið úr heildarfjölda losunarheimilda í ETS-kerfinu jafnt og þétt frá upphafi kerfisins og breytingarnar nú fela í sér að dregið verður hraðar en áður úr heildarfjölda losunarheimilda í ETS-kerfinu til að tryggja frekari samdrátt í losun. Gildissvið kerfisins hefur nú verið víkkað enn frekar og mun frá árinu 2024 einnig ná yfir losun frá farþega- og flutningaskipum sem eru stærri 5.000 brúttótonn.
Helstu breytingar í uppfærðum tilskipunum ETS-kerfi eru:
Losun frá farþega- og flutningaskipum stærri en 5.000 brúttótonn verður felld undir kerfið í skrefum frá árinu 2024 til ársins 2026.
Skipafélög munu árið 2027 þurfi að gera upp losun sína að fullu vegna losunar á siglingaleiðum innan Evrópska efnahagssvæðisins og losunar í höfnum, auk 50% losunar frá siglingum inn og út af Evrópska efnahagssvæðinu.
Breytingarnar fela jafnframt í sér að úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til flugrekenda verður hætt í skrefum frá árinu 2024 til ársins 2026.
Íslensk stjórnvöld komust sem áður segir að samkomulagi við framkvæmdastjórn ESB síðastliðið vor um aðlögun Íslands við tilskipun (ESB) 2023/958 um ETS-kerfið í flugi. Aðlögun þessi felur í sér að:
Ísland fær í fyrsta lagi sömu sérlausn og Malta og Kýpur varðandi 100% endurgreiðslu á verðmun á öllu sjálfbæru flugvélaeldsneyti og jarðefnaeldsneyti á flugvöllum á Íslandi.
Ísland getur í öðru lagi framlengt núverandi kerfi úthlutunar endurgjaldslausra losunarheimilda út árið 2026 þegar endurgjaldslausri úthlutun losunarheimilda verður hætt innan EES. Íslandi verður því heimilt að viðhalda á árunum 2025 og 2026 úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til flugrekenda sem svarar til allt að þeim fjölda losunarheimilda sem flugfélögin munu fá úthlutað á árinu 2024. Skilyrði úthlutunar er að flugfélögin skili kolefnishlutleysisáætlun til Umhverfisstofnunar.
Aðlögun Íslands felur í þriðja lagi í sér innbyggt endurskoðunarákvæði sem mun varða veginn í viðræðum við Evrópusambandið um síðari breytingar á ETS-kerfinu.
Gildissviði ETS-kerfisins er enn fremur breytt hvað varðar staðbundinn iðnað. Starfsstöðvar sem breyta framleiðsluferlum í þeim tilgangi að draga úr losun geta kosið að falla áfram undir kerfið þrátt fyrir að uppfylla ekki mörk tilskipunarinnar um uppsett afl. Markmið með breytingunni er að hvetja til frekari framþróunar í tækni sem losar lítið eða ekkert. Að auki verður úthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda frá 2026 háð því að rekstraraðilar fjárfesti í tækni til að auka orkunýtni og draga úr losun.
Virðulegi forseti. Íslensk stjórnvöld fylgdust náið með tillögum framkvæmdastjórnar ESB um breytingar á ETS-kerfinu og þá sérstaklega tillögu um breytingar á ETS-kerfinu í flugi því fyrirséð var að gerðin myndi leiða til skakkrar samkeppnisstöðu íslenskra flugrekenda og mögulega leiða til kolefnisleka. Stjórnvöld áttu af þessum sökum í viðræðum við framkvæmdastjórn ESB sem leiddi til samkomulags um aðlögun við tilskipunina fyrir Ísland sem lá fyrir um miðjan maí 2023.
Gerðirnar tóku gildi innan Evrópusambandsins í júní 2023. Frá þeim tíma hafa íslensk stjórnvöld unnið að upptöku þeirra í EES-samninginn. Nú liggja fyrir drög að ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar sem verða teknar fyrir á fundi nefndarinnar 8. desember næstkomandi. Það er áríðandi að gerðirnar verði leiddar í lög í síðasta lagi 31. desember 2023 til að samræmis verði gætt varðandi gildistöku á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og hafa menn áhyggjur af því að það gæti lagaleg óvissa komið upp ef það verður ekki gert. Áríðandi er að tiltekin ákvæði hafi verið innleidd 1. janúar 2024 en þá tekur ETS-kerfi fyrir sjóflutninga gildi og ákvæði V til bráðabirgða við lög um loftslagsmál, um takmarkað gildissvið í flugi, rennur út. Þá er einnig mikilvægt að lögfesta vöktunarskyldu samkvæmt hliðstæðu ETS-kerfi um losun frá byggingum, vegasamgöngum og smærri iðnaði, auk þess sem tryggja þarf hagsmuni innlendra aðila sem falla undir og munu falla undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Umræddar gerðir voru kynntar fyrir umhverfis- og samgöngunefnd 23. október síðastliðinn og sendar utanríkismálanefnd til skoðunar þar sem þær kalla á lagabreytingar.
Virðulegi forseti. Ég hef þá rakið meginefni frumvarpsins og tildrög þess að það er lagt fram nú. Ég vona að þessi umræða, bæði núna og í framhaldinu, verði til að upplýsa þing og þjóð um það fyrirkomulag sem við erum í og tókum fyrir þó nokkuð mörgum árum síðan ákvörðun um að taka þátt í. Ég held að það sé óhætt að segja að ástæðan fyrir því að menn gerðu það var vegna hvatningar frá íslensku atvinnulífi þar sem fyrirtæki vilja keppa á jafnræðisgrundvelli við þau fyrirtæki sem þau eru alla jafna að keppa við. Einn þáttur þessa ETS-kerfis er að þjóðríkjunum er heimilt að selja losunarheimildir og hafa af því tekjur til að nota í orkuskipti og annað slíkt og hefur fjármálaráðuneytið nú þegar, ég fer rétt með sem ég held að ég geri, fyrir hönd stjórnvalda selt ETS-losunarheimildir fyrir 14,7 milljarða, á undanförnum fimm árum. Þetta er því eitthvað sem við erum búin að taka þátt í nokkuð lengi og það væri stór ákvörðun ef við myndum gera einhverjar grundvallarbreytingar á því. Ef menn vilja fara í einhverjar slíkar breytingar þá hvet ég aðila til þess koma fram með hvaða valkostir eru þá fyrir hendi, hvað það er sem menn myndu vilja gera í staðinn, því að millilandaflug, millilandasiglingar og stóriðja, þetta eru allt saman fyrirtæki í alþjóðlegri samkeppni. Þess vegna er ETS-kerfið með þessum hætti. Hugsunin er sú að það sé samkeppni hér á svæðinu á meðan það sem er á beinni ábyrgð Íslands, t.d. varðandi losun, hvort það eru vegasamgöngur, fiskiskip eða landbúnaður, úrgangur og f-gösin og annað slíkt, er ekki háð sömu lögmálum.
Virðulegur forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar að lokinni 1. umræðu.