viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. umhverfisráðherra framsöguna. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra í ljósi þess að ráðherrann sagði hér áðan að áríðandi væri að málið kláraðist fyrir 31. desember 2023, sem þýðir í raun að áríðandi sé að málið klárist fyrir jólahlé þings núna í desembermánuði: Hvers vegna er málið að koma svona seint fram? Og þó að hæstv. ráðherra stýri auðvitað ekki umsagnarferli og meðferð nefndarinnar, hvaða tíma sér hæstv. ráðherra fyrir sér að hagaðilar fái til umsagna og þar fram eftir götunum í ljósi þess að málið er að koma fram núna?
Í öðru lagi langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra út í flugið sem hann nefndi hér áðan og áhrifin á það. Undanþága eins og hún er útfærð rennur úr gildi í lok árs 2026. Mig langar til að biðja hæstv. ráðherra að útskýra fyrir okkur þingmönnum í stuttu máli hvað tekur við. Hvað svo fyrir flugið í því samhengi þegar þær undanþágur renna sitt skeið á enda?
Í þriðja lagi langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra út í kostnað af málinu, en ég hef nú ítrekað gagnrýnt kostnaðarmat frumvarpa sem hér eru lögð fram í þinginu. Það segir á bls. 34 í bókinni sem hér liggur fyrir, með leyfi forseta: „Verði frumvarpið að lögum mun það hvorki hafa í för með sér aukinn kostnað fyrir ríkissjóð né sveitarsjóði.“ En í sömu málsgrein segir áfram, með leyfi forseta: „Kostnaði vegna tímabundinna útgjalda verður mætt af fjárveitingum til stofnunarinnar í fjárlögum …“ Það er þá væntanlega Umhverfisstofnun sem þar um ræðir. Hvort er það: Engin útgjöld eða útgjöld? En það sem er áhugaverðara að heyra er með hvaða hætti mat hefur verið lagt á kostnað atvinnulífsins, fyrirtækja og sömuleiðis heimila í landinu af þeim 14 EES-gerðum sem hér er (Forseti hringir.) lagt til að innleiða á einu bretti og regluverkinu sem þeim fylgja hér í þessari bók.