154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

543. mál
[17:07]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég ætla ekki að bæta við neinum spurningum heldur bara gefa hæstv. ráðherra svigrúm til að svara þeim spurningum sem hann svaraði ekki, sem eru annars vegar varðandi flugið eftir lok árs 2026 og hvað gerist svo gagnvart þeim flugrekendum sem hér starfa og hingað fljúga og hins vegar þetta atriði sem snýr að spurningunni um kostnað fyrir ríkissjóð. Það stangast á atriði í greinargerð innan sömu málsgreinar: Fellur til kostnaður á ríkissjóð eða ekki? Það er spurningin. Ég kem í ræðu minni hér á eftir inn á sjónarmið varðandi fyrirtæki og heimili.