154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

543. mál
[17:09]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í bráðabirgðaákvæði II sem fjallar um endurgjaldslausar heimildir vegna flugs, losunarheimildir sem flugfélögin fá. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Verða losunarheimildirnar sem flugfélögin fá ókeypis teknar úr potti sem ríkið gæti annars selt og haft tekjur af? Og hversu mikill ríkisstuðningur væri það? Er hæstv. ráðherra ánægður eftir alla þessa fundi íslenskra stjórnvalda með fólki í Brussel með að útkoman sé sú að íslenska ríkið megi úthluta losunarheimildum sem annars hefðu verið boðnar upp? Og að lokum: Er þessi aðlögun alveg 100% örugglega í hendi? Það er bara vísað í samkomulag við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins varðandi þessa aðlögun. Er alveg öruggt að hún sé studd af ráðinu og ef svo er, af hverju er það ekki nefnt í frumvarpinu?