viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Virðulegi forseti. Nú hafa örlögin hagað því þannig okkar stærsti búhnykkur í atvinnulífinu byggir einmitt á flugi til og frá Íslandi eða til og frá Evrópu með viðkomu á Íslandi. Skil ég það rétt að nú sé búið að finna leið til að firra íslenska farþega auknum gjöldum af flugi sínu milli landa með einhvers konar heimildabraski, leyfi ég mér að segja? Og gildir hið sama um skipaflutninga, að þetta muni ekki bitna á vöruverði, þ.e. hækkuðum gjöldum sem íslensk fyrirtæki þurfa þá til að flytja hingað matvæli og nauðsynjavöru? Og þá spyr ég að lokum: Er hið fornfræga fyrirkomulag „hub“ eða millilendingarstaðurinn Ísland í einhverri hættu eða kominn í óvænta samkeppni kannski við Bretland sem þarf ekki að hafa áhyggjur af ETS í dag og sem gæti hugsanlega orðið sá millilendingarstaður, þ.e. Skotland eða Bretland, sem við höfum orðið og höfum miklar tekjur af? Bara svo að ég skilji þessar nýju forsendur rétt, því að til skamms tíma heyrðist nú heldur betur í bæði skipafélögunum og flugfélögunum yfir þessum álögum, hvenær sem þau myndu á dynja. En nú kann ýmislegt hafa breyst með samningafundum bak við tjöldin. — Bara þannig að það sé skýrt fyrir mér og þeim sem eru að hlusta.