viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Já, hér geta verið flókin álitamál á ferð. Það sem ég er að spyrja um er: Lenda þessi gjöld ekki hreinlega á íslenskum farþegum þegar við erum að fljúga almennt þrisvar, fjórum sinnum lengri leið milli borga Evrópu og okkar höfuðborgar hér, Keflavíkur, eða erum við að nýta okkur einhvers konar, hvað getum við sagt, sölu á aflátsbréfum til að niðurgreiða það? Heyrði ég það rétt að það sé partur af planinu? Mun þetta ekki bitna á íslenskum neytendum, þ.e. flugfarþegum frá og með 1. janúar 2027 með hærri gjöldum en við erum að borga í dag og mun þetta ekki bitna á íslenskum neytendum varðandi flutninga á aðföngum til landsins eða er verið að nota einhver kerfi til að firra íslenska neytendur þessum álögum? Og að endingu: Sjóðirnir sem þarna eru undir (Forseti hringir.) og við munum væntanlega hafa fullan aðgang til að sækja í til þess að þróa okkar rafeldsneyti; (Forseti hringir.) liggur það fyrir hvað þeir sjóðir eru gildir og hvort við höfum hlutfallslega sambærilegan aðgang og stóru löndin að þeim þróunarsjóðum?