viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Hann kemur inn á margt en ég vil samt sem áður segja að ég vil gjarnan taka djúpa umræðu um þessi mál og önnur. Ég kalla eftir því að meira verði um að ég verði fenginn í sérstaka umræðu um þessi grundvallarmál. Það er mjög langt síðan við tókum þetta ETS-kerfi upp og það hefur ekkert breyst í grundvallaratriðum. Ástæðan fyrir því að þetta kemur núna er að menn voru að sækja um aðlögun út af því sem hv. þingmaður hafði áhyggjur af. Menn hefðu alveg getað tekið þetta upp án aðlögunar fyrir löngu síðan. Ástæðan fyrir þessari svokölluðu tímapressu er ekki einhver kvikindisskapur heldur er hún fyrir íslenskt atvinnulíf því að það kæmi upp réttaróvissa ef við værum ekki búin að innleiða þetta um áramót. Svo sannarlega er engin gullhúðun og upprunaábyrgð, það er allt annað mál (Gripið fram í.) og tengist þessu ekki.
Hv. þingmaður hefur áhyggjur af CBAM og mér finnst það gott. Við eigum að gera það. Við verðum alltaf að huga að því að Ísland er í miðju Atlantshafinu. CBAM gengur út á þær áhyggjur evrópskra atvinnurekenda, af því að allar þjóðir í Sameinuðu þjóðunum taka þátt í Parísarsáttmálanum, eins og hv. þingmaður vísaði í, að einhverjir séu ekki með sömu kröfur og evrópsk félög. Þetta gengur út á það að segja: Þið getið ekki mætt hingað og keppt við okkur og komið hingað á einhverjum allt öðrum forsendum. Ef þið uppfyllið ekki skilyrði eins og evrópsk félög, t.d. um flug í þessu tilfelli, þurfið þið að borga einhverra hluta vegna fyrir það svo að þið verðið ekki í betri samkeppnisstöðu heldur en evrópsku flugfélögin. Það er hugsunin á bak við CBAM. (Forseti hringir.)
Ég vil gjarnan ræða þetta á dýptina og ég held að það skipti mjög miklu máli. Ég skal vera með hv. þingmanni hér fram á rauða nótt ef svo ber undir því að það er mjög mikilvægt að við ræðum þetta út frá staðreyndum.