viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra andsvarið. Ég fletti upp fréttinni sem hæstv. ráðherra vísaði í um viðtalið við forstjóra Eimskipafélagsins. Þar er beinlínis sagt að hluti af því að bregðast við þessum kostnaðarauka sé að fækka viðkomustöðum. Það er í flestu tilliti, alveg sama hvort við horfum til siglinga eða millilandaflugs, skerðing á þjónustuframboði og skerðing á þjónustu. Ég get ekki ímyndað mér að það sé í nokkru samhengi talið til bóta fyrir íslensk fyrirtæki sem fyrst og fremst nýta sér þessa þjónustu. Ég ætla að leyfa mér að vitna í orð forstjóra Eimskipafélagsins, með leyfi forseta. Á vef Ríkisútvarpsins, ruv.is, segir:
„Vilhelm Þorsteinsson forstjóri Eimskips segir að sparnaðurinn nemi um 5 milljónum bandaríkjadala. Hann segir gagnrýni sína ekkert hafa með metnaðinn í umhverfismálum að gera né þörfina fyrir að draga úr losun heldur að benda á að mengunarkvótinn leggist þyngra á samfélag eins og Ísland en önnur.“
Þarna eru menn búnir að greina þetta eins og rekstur þeirra lítur út. Þá blasir það auðvitað við að landfræðileg lega Íslands orsakar það að þessi kerfi sem verið er að innleiða eins og á færibandi leggjast þyngra á íslensk fyrirtæki og heimili en önnur. Það eru skilaboðin. Í því samhengi eigum við að spyrna við fótum með öllum tiltækum leiðum. Ég get ekki séð að ríkisstjórn Íslands sé á þeirri vegferð nú um stundir.