viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Í ljósi upphafsorða hv. þingmanns þar sem kom fram að við ætlum ekki að vera eftirbátar annarra þjóða í loftslagsmálum, sem ég held að sé svona meginþema flestra sem um þessi mál hugsa, langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji okkur vera það í einhverju samhengi sem kalli á sérstök viðbrögð. Ég er sammála því sem hv. þingmaður sagði að það verður oft þannig að kerfi, hvort sem það eru þessi kerfi eða einhver önnur, eru smíðuð utan um aðra hagsmuni heldur en eiga við um þjóð hér í miðju Atlantshafi. Þau eru miklu líklegri til að lúta að hagsmunum stórra meginlandsþjóða. Við þekkjum umræðuna um kerfið sem hér er undir sem gengur m.a. út á það í grunninn að troða fólki sem vill ferðast með flugvélum í járnbrautarlestir. Við eigum fáar slíkar. Þetta atriði sem hv. þingmaður byrjaði á, að við ætlum ekki að vera eftirbátar annarra þjóða í loftslagsmálum, telur hv. þingmaður í einhverju samhengi íslenska þjóð, íslensk fyrirtæki og íslenskt samfélag vera það?