viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég er sammála því sem hv. þingmaður sagði, að við sem þjóð værum í öfundsverðri stöðu vegna allrar þeirrar grænu orku sem hér verður til. Mig langar í því samhengi að spyrja hv. þingmann, sem er þingflokksformaður Framsóknarflokksins sem er einn þriggja stjórnarflokka, hvernig hv. þingmanni og þingflokksformanni þykir ganga hvað framleiðslu og eftir atvikum dreifingu þessarar grænu orku varðar. Það er tómt mál um að tala, eins og hæstv. ráðherra kom svo ágætlega inn á áðan, að það væri óskastaða að grænir orkugjafar kæmu í stað jarðefnaeldsneytis, t.d. í flugi og siglingum — til þess þarf að búa til grænu orkuna. Í þeim efnum hefur gengið vægast sagt brösuglega býsna lengi og nú hélt þessi ríkisstjórn upp á tveggja ára afmælið á öðru kjörtímabili sínu í gær, ef ég man rétt, frekar en í fyrradag. Hvaða augum lítur hv. þingmaður á orkuöflunargetuna sem fram undan er? Þá er ég ekki að spyrja um það hvort þriðja rammaáætlun hafi verið samþykkt hér heldur raunveruleg líkindi á því að við komumst áfram með græna orkuframleiðslu.