154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

raforkulög.

541. mál
[18:41]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það er sjálfsagt við þessi tímamót að velta aðeins fyrir sér hvernig það má vera að við séum komin á þennan stað í orkumálum, þessi þjóð sem býr við svo miklar auðlindir og möguleika á nýtingu grænnar orku að við erum meðal fremstu þjóða í heiminum. Við eigum meiri tækifæri en nokkur önnur þjóð og hingað erum við komin. Við þurfum að fara fram með frumvarp í þinginu til að verja hagsmuni heimila landsins og fjölskyldnanna, hornsteina samfélagsins, og lítilla fyrirtækja. Við höfum líka búið við þá stöðu á undanförnum árum að við höfum þurft að keyra mjög mikið af dísilvélum til raforkuframleiðslu með tilheyrandi kostnaði og tilheyrandi kolefnisspori, allt það á þessum tímum þar sem loftslagsmál eru í forgrunni í svo mörgu og hjá svo mörgum.

Á sínum tíma varð mikil samstaða í þinginu þegar við samþykktum lög um rammaáætlun. Rammaáætlun var afgreidd í þinginu með öllum greiddum atkvæðum. Það var góður hugur í þinginu að reyna að ná víðtækri sátt um þessi deiluefni sem staðið höfðu um virkjanir, sérstaklega eftir að ákvörðun um Kárahnjúkavirkjun var tekin og hún var byggð fyrir austan. Í aðdraganda þess þegar lögin um rammaáætlun voru samþykkt á kjörtímabilinu 2009–2013 skilar verkefnisstjórn sem var þá undir stjórn Svanfríðar Jónasdóttur, bæjarstjóra í Dalvíkurbyggð, sem formaður, af sér tillögum um rammaáætlun. Ef maður skoðar tillögur þeirra sem þóttu mjög málefnalegar og vel undirbúnar, gríðarlega góð vinna hafði farið fram og mikla kynningar um land allt, er áhugavert að skoða þá vatnsaflskosti, fyrir utan alla jarðvarmakostina, sem þau nefna til sögunnar. Ég ætla að grípa niður í dæmi um kostina sem skora hvað hæst í vatnsaflskostum út frá röðun af sjónarhóli nýtingar og skora ekki eins hátt, og mjög lágt margir hverjir, út frá röðun af sjónarhóli verndar.

Þarna gefur að líta Holtavirkjun. Þar reiknar þessi hópur með að sex, sjö árum seinna, árið 2016, verði fyrsta gangsetning Holtavirkjunar möguleg. Hvammsvirkjun, fyrsta gangsetning 2015. Skrokkölduvirkjun, fyrsta gangsetning 2018. Urriðafossvirkjun, fyrsta gangsetning 2016. Kjalölduveita, sem áður hét Norðlingaölduveita, fyrsta gangsetning 2014. Þarna er hönnun og undirbúningsvinnu og mati á umhverfisáhrifum að miklu leyti lokið eða komið mjög langt. Tungnaárlón, fyrsta gangsetning 2017. Bjallavirkjun, fyrsta gangsetning 2017. Ég hef ekki talið saman megavöttin en ég get haldið áfram: Skatastaðavirkjun, fyrsta gangsetning 2019.

Þetta voru væntingarnar sem fyrsta alvörurammaáætlunin sem leit dagsins ljós bar með sér, það tímaferli sem menn sáu fyrir sér þegar vinnan var að hefjast um hversu langan tíma þessi mál myndu taka. Og nú, virðulegur forseti, er árið 2023. Því ári er að ljúka og við erum ekki komin lengra en þetta. Af hverju gerist það þegar væntingar þingmanna og þeirra sem stóðu að þessum undirbúningi og voru að vinna þetta voru með allt öðrum hætti? Við þyrftum ekki nema örfáa af þessum kostum virka í dag til þess að sú staða sem við okkur blasir væri ekki að raungerast, en hún er búin að blasa við lengi. Það kom tillaga um nýtingarflokk þar sem voru nokkrar vatnsaflsvirkjanir frá þessum hóp eftir að lögin höfðu verið samþykkt. Þá kom þessi tillaga fram en vegna tímabundins ákvæðis í lögunum hafði þáverandi hæstv. umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, látið gefa álit. Fólk gat skilað inn áliti á tillögunni áður en hún fór til þingsins. Þetta var sólarlagsákvæði á þessari grein í lögunum. Engan grunaði að málið yrði misnotað með þessum hætti af ráðherra Vinstri grænna. Ef maður les umsagnirnar sem bárust, sem voru á þriðja hundrað, eru þarna það sem maður getur kallað magnundirskriftir frá einstaklingum héðan og þaðan úr heiminum sem greinilega var safnað af andstæðingum virkjunarframkvæmda á Íslandi. Þetta þótti vera svo merkileg niðurstaða að nokkrum kostum í nýtingarflokki var kippt út og í raun kom bara einn vatnsaflskostur inn, Hvalárvirkjun á Vestfjörðum, sem er samkvæmt öllum útreikningum dýrasti vatnsaflskostur á landinu. Þess vegna er málið ekki komið lengra.

Það var síðan á kjörtímabilinu 2013–2016 sem við reyndum að gera breytingar á þessu og fórum fram með tillögu frá atvinnuveganefnd um að fjölga verulega, eftir ákveðna hraðmeðferð á ákveðnum virkjunarkostum, þeim vatnsaflskostum sem færu í nýtingarflokk. Það ætlaði allt um koll að keyra hér. Grípa má niður í ummæli þingmanna Vinstri grænna, Samfylkingarinnar, Pírata og Bjartrar framtíðar frá þessum tíma þar sem þeir kalla þessa tillögu atvinnuveganefndar stríðshanska, algjöran stríðshanska á sviði umhverfismála, að friðurinn sé fullkomlega slitinn í sundur í þessum málum, að það sé ótrúlegur átakavilji af hálfu þessarar ríkisstjórnar að vilja rjúfa alla möguleika um sátt um virkjunarmál í landinu og færa umræðu um náttúruvernd aftur fyrir aldamót, að það sé algjörlega óskiljanlegt af hverju ríkisstjórnin vill fara í stríð um þetta mál. Svona töluðu þingmenn þessara flokka á þessum tíma og komu í raun í veg fyrir það að við gerðum skynsamlegar breytingar á árinu 2015 sem hefðu leitt til þess að við værum í allt annarri stöðu í dag. Stjórnarflokkarnir þá kláruðu ekki málið vegna þessarar miklu andstöðu og þeirra láta sem voru. Það er talað um að þeir flokkar hafi ætlað að rjúfa friðinn um þetta mál en það er áhugavert að lesa sögu Össurar Skarphéðinssonar, bók Össurar Skarphéðinssonar um stjórnarsamstarfið í vinstri stjórninni 2009–2013, þegar kemur að þessum málum þar sem hann gerir því mjög góð skil hvernig þetta mál var andlag hrossakaupa í þeirri ríkisstjórn. Þegar kom að því að semja um að halda áfram aðildarviðræðum að Evrópusambandinu voru kaupin þau að rammaáætlun færi í gegn eins og hún var og þessi lög um rammaáætlun yrðu samþykkt. Samfylkingin var þar tilbúin að skipta hagsmunum þjóðarinnar í orkumálum út fyrir það að aðildarviðræðum að Evrópusambandinu yrði haldið áfram.

Hverjar eru svo afleiðingar þessa alls? Það sem þær breytingar sem gerðar voru hafa leitt af sér í verkefnisstjórninni sem tók við, verkefnisstjórn sem Svandís Svavarsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra, skipaði nokkrum dögum fyrir kosningar áður en hún lét af embætti í umhverfisráðuneytinu, er að hún skipaði í hana fólk sem túlkaði lögin alls ekki með sama hætti og við sem höfðum unnið að þessu í þinginu og samþykktum þetta höfðum væntingar til. Það hefur þyngt allt ferlið verulega mikið, sérstaklega það hversu djúpt er farið í vinnuna við rammaáætlun. Þar er farið inn á það svið að meta virkjunarkosti í mörgum tilfellum eins og um sé að ræða umhverfismat framkvæmda en það segir alveg skýrt í nefndaráliti og reyndar í lögunum að nefndin leggi til ákveðnar breytingar sem skuli tryggja samræmi í þessu og það er alveg skýrt tekið fram að miða eigi við umhverfismat áætlana, vegna þess að umhverfismat framkvæmda fer fram þegar kosturinn er kominn í nýtingarflokk og menn ætla að fara af stað í framkvæmdir og útfærslu á þeim. Þetta hefur kostað verulegan tíma og haft í för með sér mikinn kostnað. Svo hefur heldur ekki verið unnið eftir því að meta efnahagsleg og félagsleg áhrif virkjana með sómasamlegum hætti. Það vannst ekki tími til þess á sínum tíma. Það er samt einn af þeim flokkum sem lögin gera ráð fyrir og þingið var algerlega sammála um að yrðu að liggja til grundvallar.

Þegar við stóðum í þessum slag í kringum 2015 varaði ég mjög við þeirri sviðsmynd sem blasir við okkur í dag. Ég varaði við því að landið myndi verða orkulaust. Mér eru minnisstæð orð þingmanna, m.a. úr Samfylkingunni og Vinstri grænum, sem sögðu við mig: Jón, láttu ekki svona. Það er nægjanleg orka til á Íslandi. Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu. Þá stóð fyrir dyrum mjög áhugavert verkefni uppi á Grundartanga, nýtt verkefni sem var reyndar mjög umhverfisvænt, umhverfisvænasta stóriðjan, ef stóriðju skyldi kalla, og það var ekki hægt að selja orku. Þannig hafa tækifærin, virðulegur forseti, á undanförnum árum runnið okkur úr greipum. Það hafa orkufyrirtækin og Íslandsstofa sagt okkur í nokkur ár, að í hverjum einasta mánuði berast tækifæri til Íslands sem hefðu getað skotið rótum fyrir framtíðarkynslóðir þessa lands með nýrri atvinnustarfsemi og nýrri verðmætasköpun á grundvelli grænnar orku og við værum miklu betur í stakk búin til að fara í orkuskiptin sem eru okkur svo mikilvæg, og fólk talar um að það þurfi að draga úr jarðefnaeldsneytisnotkuninni. Hvar við erum hefur sem sagt áhrif á loftslagsmálin. Þversögnin að tala um kolefnisjöfnun og vera svo andstæðingur virkjana og uppbyggingu grænna atvinnugreina er auðvitað kallandi. Byggðamál og byggðaþróun tengjast þessu líka vegna þess að það er einmitt þessi orka sem gefur okkur tækifæri til að búa til atvinnu og verðmætasköpun á þeim svæðum sem þess þurfa til að styrkja byggð.

Hingað erum við komin, virðulegur forseti, og ég vona að þingið axli þá ábyrgð sem það á að gera í þessu máli og klári það. En áttum okkur á því að við þurfum að grípa til neyðarráðstafana í orkuöflun. Því segi ég það fullum fetum að það verður að taka út úr rammaáætlun ákveðna virkjunarkosti. (Forseti hringir.) Það verður að skoða sérlög um vindorku og ákveðna virkjunarkosti þannig að við getum haldið áfram með sómasamlegum hætti.