raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég skil ekki betur en svo að ég og hv. þingmaður séum alla vega sammála um mikilvægi þess að tryggja framgang þess frumvarps sem við stöndum og erum að ræða, sem hv. atvinnuveganefnd er öll sameinuð um að flytja í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin. Ég heyri ekki betur en að ég og hv. þingmaður séum líka sammála um að þetta er náttúruleg staða sem veldur því að lónsstaðan er svona lág, en ég fæ ekki alveg botn í það að við séum endilega á sömu línu um að eðlilegt sé að gera ráð fyrir því. Hv. þingmaður segir sannarlega að fyrirtækin geri ráð fyrir því í sínum plönum en í sömu setningunni talar hann um að eftirspurnin sé gríðarleg. Það vitum við. Er þá hv. þingmaður með öðrum orðum að segja, með vísan til fyrra samtals um það að vinnan við rammaáætlun gengur út á að gæta jafnvægis á milli nýtingar annars vegar og verndar hins vegar, ef ég skil hann rétt, að við eigum að verða við allri þeirri eftirspurn sem til landsins rekur?