raforkulög.
Virðulegur forseti. Þetta eru neyðarlög og það er ekkert stórkostlegt að gerast í vatnsbúskapnum. Fordæmi eru fyrir þessu og auðvitað er gert ráð fyrir því af orkufyrirtækjum. Þess vegna eru ákvæði í samningum við stóriðjuna um að geta skert orku. Þess vegna eru menn að selja skerðanlega orku, jafnvel til minni fyrirtækja á ákveðnum tímum, af því að þeir vita að þessi staða kemur upp. Náttúran er ófyrirsjáanleg eins og hún er. Við gætum aldrei tekið á móti allri eftirspurn sem kemur. Við þurfum að velja og hafna. Í atvinnustefnu sem samþykkt var á kjörtímabilinu 2013–2016 afgreiddi atvinnuveganefnd einmitt þingsályktunartillögu iðnaðarráðherra þess tíma þar sem sagði að við værum komin með nóg af stóriðju í landinu — ég var formaður nefndarinnar þegar þetta var afgreitt og er alveg sammála því — en að nú skyldum við horfa á atvinnurekstur sem myndi nýta kannski 20, 30 og upp í 100 MW en ekki 500 eða 600 MW eins og stóriðjan þarf. Þannig sáu menn þetta fyrir sér, að við gætum svarað spennandi tækifærum um grænan iðnað í landinu sem dreifa mætti um landið til að styrkja stoðir byggðar, verðmætasköpunar og atvinnusköpunar í þessu landi. Það er ekki hægt. Slík tækifæri hafa siglt fram hjá okkur núna í nokkuð mörg ár með tilheyrandi efnahagslegum afleiðingum, eða hverjar gætu tekjurnar verið af slíkri starfsemi ef við hefðum haldið sómasamlega á málum hér á þingi og farið með það með þjóðarheill í huga? Þingið hefur að þessu leyti algerlega brugðist því hlutverki sínu að gæta að þessu. Vilji menn rannsóknarnefndir um það hvort einhver bankasala Íslandsbanka hefði getað skilað milljarði meira eða minna í ríkiskassann þá skulu menn setja rannsóknarnefnd um það hvað það kostar marga tugi milljarða á ári að menn hafi ekki haldið sómasamlega á málum.