154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

raforkulög.

541. mál
[19:05]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir aldeilis prýðisgóða ræðu. Það er allt of sjaldan sem hlutir eru settir í samhengi í þingsal við þróun mála og söguna í raun. Það kom mér ekki á óvart að þetta kæmi dálítið við kaunin á hv. þingflokksformanni Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Orra Páli Jóhannssyni, fyrir hönd sinna ráðherra. Það sem ég vil spyrja hv. þingmann um, og aftur þakka ég fyrir þessa góðu yfirferð og samantekt og jafnvel enn betra andsvar rétt áðan: Nú er þetta samstarf stjórnarflokkanna búið að vara í á sjöunda ár og eru hér um bil tvö ár eftir af kjörtímabilinu. Sér hv. þingmaður fyrir sér, hafandi verið formaður atvinnuveganefndar á sínum tíma sem afgreiddi þessi mál og ráðherra í þeirri ríkisstjórn sem nú situr, að það sé raunverulega mögulegt að komast almennilega áfram hvað framleiðslu á nýrri grænni orku varðar og hvað varðar flutningskerfið á þessu kjörtímabili?