raforkulög.
Virðulegur forseti. Svarið getur verið stutt og einfalt: Nei, ég er ekki bjartsýnn á að það geti gengið eftir nema þá að gripið verði til neyðaraðgerða eins og nú er gert í þinginu, sem er mjög mikilvægt. Við afgreiddum rammaáætlun. Hæstv. umhverfisráðherra kom með rammaáætlun inn í þingið og það tókst að klára hana. Það var út af fyrir sig áfangi eftir að rammaáætlun hafði ekki verið afgreidd í mörg ár. En það verður að hafa í huga að þetta var lægsti samnefnari og erum við þar með einn raunverulegan vatnsaflskost í nýtingarflokki. Jarðvarmakostirnir eru mjög umdeildir. Við getum talað um Eldvörp, Krýsuvík og slíka hluti sem eru í nýtingarflokki, sem er algerlega óraunhæft að fara í. Í Henglinum og á Hengilssvæðinu, Hverahlíðinni og víðar eru virkjunarkostir þar sem allt er orðið gjörbreytt og allar forsendur gjörbreyttar út af því hvernig eldvirkni er að aukast á þessu svæði. Þetta er auðvitað þjóðaröryggismál. Þetta er almannavarnamál og á grundvelli þess að þetta er þjóðaröryggismál ættum við í raun og veru að fara fram, eins og ég nefndi hér áðan, með tillögur um hraða uppbyggingu í vindorku. Hún hefði sennilega komið í veg fyrir svona skerðingar og hún getur byggst upp á miklu skemmri tíma heldur en vatnsaflsvirkjanir eða jarðvarmavirkjanir. Við þyrftum að höggva á hnútinn varðandi Hvammsvirkjun út af vatnatilskipuninni. Ég veit ekki hvaða embættismenn hafa gert mistök þegar það kom í ljós þegar hefja átti framkvæmdir við Hvammsvirkjun að vatnatilskipunin stoppar það. Það er sérstaklega kveðið á um að samráð skuli haft milli aðila, milli embætta og stofnana um vatnamálin í virkjunarmálum. Einhverjir hafa sofið á verðinum í því. Ég er ekki bjartsýnn að í þessari ríkisstjórn náum við einhverri skynsamlegri niðurstöðu um það að bregðast við þessari þjóðarvá sem við stöndum frammi fyrir.