154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

raforkulög.

541. mál
[19:09]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Því miður deili ég skoðun á þessu máli hvað mögulega uppbyggingu og framleiðslu á — ég er reyndar mjög oft sammála og yfirleitt sammála hv. þingmanni en því miður er ég er sammála mati hans um að ekki séu líkur til þess að vel gangi hvað aukna framleiðslu á grænni orku varðar á næstunni, með það í huga að þegar Hvammsvirkjun steytti á skeri fyrir ekki löngu síðan þá mætti helst lýsa því sem sigurstríðsdansi sem sumir fulltrúar samstarfsflokks í ríkisstjórn stigu til að fagna þeirri niðurstöðu. Sú mynd sem er að teiknast upp er að þessi ríkisstjórn sem nú situr klári tvö kjörtímabil, átta ár, þar sem ekkert mjakast í þessum efnum. Það mun taka nýja ríkisstjórn þegar þar að kemur, verði hún bærilega samsett, einhvern tíma að koma málum úr þeirri kyrrstöðu sem verið hefur.

Aftur þakka ég fyrir þessa söguyfirferð sem fór fram áðan. Hún er nauðsynleg og mikilvæg fyrir þingheim að halda til haga vegna þess að hér hafa ekki allir setið kjörtímabilum saman eins og hv. þingmaður, og verði þau sem flest til viðbótar. Það breytir því ekki að ég deili þeirri skoðun hv. þingmanns að samstarf ríkisstjórnarinnar nú er ekki líklegt til þess að ná árangri næstu tvö árin, sitji hún í þann tíma.