raforkulög.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp um breytingu á raforkulögum, forgangsorku. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir hans góðu ræðu hér á undan. Ég vil byrja á að fara í gegnum vinnu sem var kynnt haustið 2020, vinnu sem fór fram í tengslum við gerð orkustefnu til ársins 2050, Sjálfbær orkuframtíð. Með leyfi forseta, ætla ég að lesa inngang þess skjals. Það ber að hafa það í huga að allir átta þingflokkar þingsins komu að þessari vinnu og þessu góða skjali sem orkustefnan var. Þessi vinna tók um eitt og hálft eða tvö ár. Í skjalinu segir:
„Í skjali þessu er sett fram tillaga að langtímaorkustefnu fyrir Ísland til ársins 2050.
Orka varðar alla Íslendinga og kemur daglega við sögu í lífi landsmanna. Aðgengi að orku, jafnt varma, rafmagni og eldsneyti, er hluti af almennum lífsgæðum almennings og jafnframt forsenda þess að hana megi nýta sem aflgjafa til að knýja hjól atvinnulífsins. Verðmætasköpun af endurnýjanlegum orkuauðlindum er þannig ein af undirstöðum lífskjara á Íslandi. Orkuöryggi og tryggt orkuframboð er grundvallarþáttur í þjóðaröryggi Íslands. Orkuskipti, þar sem jarðefnaeldsneyti víkur fyrir endurnýjanlegum orkugjöfum, eru nauðsynleg til að vinna gegn loftslagsvánni sem er ein af stærstu áskorunum sem mannkynið stendur frammi fyrir.
Með langtímaorkustefnu er stefnt að því að gæta hagsmuna núverandi sem komandi kynslóða. Þar er sjálfbær þróun höfð að leiðarljósi, sem endurspeglar jafnvægi milli efnahagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra þátta. Stefnan er uppbyggð með framtíðarsýn, leiðarljósum og meginmarkmiðum. Þá eru settar fram undirstöður sem mynda grundvöll stefnunnar. Þar er horft til allrar virðiskeðju orkunnar, frá auðlind til notanda.“
Þetta er ekki nýtt vandamál sem við erum að ræða hér. Það hefur margoft verið varað við því. Landsnet í skýrslu 2017 varaði mjög við því hvaða staða væri að koma upp og í hvað stefndi á næstu árum. Það verður að segjast eins og er að það sem Landsnet var að vara við fyrir fimm, sex, sjö árum er veruleiki sem er að skapast og við erum að kynnast núna. Í skýrslu Landsnets frá 2017, sem ber heitið Afhendingaröryggi og gæði flutningskerfisins – Frammistöðuskýrsla 2015, segir m.a. um áhrif veikrar byggðalínu á afhendingaröryggi:
„Orsök margra truflana í flutningskerfinu hér á landi má rekja til þess hversu takmörkuð flutningsgeta byggðalínunnar er orðin, enda liðið á fjórða áratug frá því að lokið var við lagningu þessarar 132 kW hringtengingar frá Brennimel í Hvalfirði, norður og austur um land og suður í Sigöldu.“
Það er nákvæmlega þetta, það eru að verða 50 ár síðan þessi lína var byggð upp þegar við vorum að hefja stóriðju á Íslandi og byggðalínuhringurinn verður raunverulega til í tengslum við það verkefni og var gríðarlega mikilvægt verkefni og hefur verið það síðustu áratugi. En við erum farin að sjá á undanförnum árum og sérstaklega í aðventustorminum, veðrinu sem gekk yfir landið í desember 2019, mikilvægi þess að endurbyggja þessa línu. Þær framkvæmdir eru komnar af stað og Kröflulína 3 er komin frá Fljótsdalsstöð upp í Kröflu og Hólasandslína 3 er komin frá Kröflu til Akureyrar en það er eftir að framkvæma frá Akureyri og í Hvalfjörðinn, þ.e. Blöndulína 3 og Holtavörðulína 1 og 3, og svo er Suðurnesjalína frá Hafnarfirði og út á Reykjanestá.
Af hverju tala ég um þetta? Vegna þess að þetta er lykilatriði til að nýta græna orku á Íslandi. Hér í máli áðan var farið yfir virkjanir og að framleiða orkuna sem er náttúrlega mikilvægt en það er líka mikilvægt að hafa flutningskerfi á bak við virkjanirnar. Það eru þær, flutningslínurnar, sem skapa öflugt kerfi til að flytja orku á milli svæða, sem er kjarninn, lykillinn að grænni orkuframtíð á Íslandi, nýta endurnýjanlega orkugjafa og skapa það öryggi sem við þurfum á að halda nú þegar við stefnum að því að raforkuvæða landið og hætta að nýta olíu og bensín. Við ætlum að nýta rafmagn, raforku, rafvæða landið. Lykillinn að því er flutningskerfið.
Það sem við erum að upplifa núna varðandi lónin höfum við upplifað núna á síðustu árum og nú hefur Landsvirkjun gefið það út að það verði líka vandræði núna í vetur með lónin. Það er akkúrat þetta öfluga flutningskerfi sem hefði getað hjálpað okkur í þessu ástandi. Það var sérstaklega tekið fram í fyrravetur, veturinn 2021/2022, að væntanlega hefði öflugt flutningskerfi, ef það hefði verið komið upp, það sem verið er að byggja upp núna, komið í veg fyrir þá erfiðu stöðu nánast að fullu leyti sem skapaðist þann vetur. Það sem Landsnet var að vara okkur við 2017 og fleiri er bara vaxandi vandamál og mun stóraukast á næstu árum og mun gera það úr því sem komið er vegna þess að það er engin ný orka á leiðinni alveg á næstunni, miðað við hvernig gangurinn hefur verið í þessum þingsal og úti í samfélaginu við að koma þessum verkefnum af stað. Það hefur lítið verið gert síðan að Fljótsdalsstöð var tekin í notkun 30. nóvember 2007. Á morgun eru 16 ár síðan að hún var tekin í notkun. Jú, jú, það er búið að stækka Búrfell, það er komin virkjun sem við köllum Búrfell 2. Þeistareykjavirkjun hefur líka verið tekin í notkun á þessum tíma. Á þessum 15 árum eru þetta tvær, þrjár framkvæmdir sem hafa farið af stað.
Stærsta einstaka vandamálið akkúrat núna er hversu veikt flutningskerfi raforku er. Það er fulllestað og tengingin á milli norður- og suðursvæðisins er gríðarlega stórt vandamál sem hefur gjörsamlega verið — ja, þessu hefur ekkert verið sinnt. Það hefur ekki verið mikil athygli á þessu máli í pólitíkinni eða stjórnsýslunni, sem er algjört lykilatriði. Það hefur verið lítill áhugi og þetta er allt að koma í bakið á okkur núna.
Eins og ég sagði áðan þá eru orkuskiptin, rafvæðing landsins og mikilvægi flutningskerfis raforku og áfallaþol þess kerfis þjóðaröryggismál. Ef þetta kerfi stendur sig ekki, þegar við ætlum að hætta að nota bensín og dísil og annað jarðefnaeldsneyti eins og stefnt er að innan fárra ára og við ætlum að treysta fullkomlega á þetta kerfi, þá veit ég ekki hvað við ætlum að gera, miðað við þær hugmyndir og hvernig þessi umræða er í pólitíkinni sem snýr að flutningskerfinu. Það hefur raunverulega verið unnið gegn því að klára þær framkvæmdir á undanförnum árum. Við erum búin að sjá þetta, það hefur verið umræða í 15–20 ár. Við þekkjum þetta fyrir norðan. Það var ekki hægt að stinga pylsuvagni í samband í göngugötunni á Akureyri lengi vel. Það varð mikil breyting núna þegar Kröflulína 3 kom og Hólasandslína 3 en það þarf að gera betur.
Ég vil síðan taka undir það sem kom fram í ræðu áðan um mikilvægi þess að við styrkjum orkuöflun á norðanverðu landinu, sem er reyndar mjög mikil í dag vegna þess að frá Blöndu og í Fljótsdalsstöð er uppsett afl yfir 1.000 MW sem er svipað og Landsvirkjun er að framleiða í Tungná og Þjórsá og Soginu. Þetta eru mjög álíka tölur en það verður að tengja þarna á milli. Það sem við erum að kynnast akkúrat núna með jarðhræringum og slíkum hlutum, sjáum áhættumatið, þá skiptir gríðarlega miklu máli að laga þessa stöðu. Það hefur líka komið fram, eins og ég kom inn á áðan og var í umræðunni hér í kvöld, hver vatnsstaða lónanna er. Það kemur á óvart hvað þetta virðist vera að gerast síendurtekið núna, stutt á milli. Þá er það nákvæmlega flutningskerfi raforku sem er í lykilhlutverki til að laga svona stöðu þegar hún kemur upp, hámarka orkunýtni og hámarka þessa mikilvægu auðlind sem við eigum sem er orka, raforka.
Það hafa ákveðnir hlutir gengið í gegn. Rammaáætlun 3 náðist hér í gegn fyrir einu og hálfu ári og á sama tíma fór í gegnum þingið frumvarp um aflaukningu virkjana í Þjórsá. Þetta eru mjög mikilvæg mál eins og aflaukning virkjana, það að eiga við afltoppana, þótt það sé kannski ekki verið að framleiða mikið fleiri gígavattstundir yfir árið þá er þetta til þess að fara í gegnum afltoppana sem að einhverju leyti má segja að sé mál svolítið tengt flutningskerfinu en síðan er þetta samspil vatnsafls og vindafls og það er nauðsynlegt að hafa þetta afl í kerfinu. Við væntum þess að á næstu misserum og vonandi á nýju ári komi fram löggjöf um vindorku sem verður gríðarlega mikilvægt og stórt verkefni í þessu samspili vatnsafls, jarðvarma og vindorku með öflugu flutningskerfi og síðan að rammaáætlun 4 fari að koma þar sem er inni stærsti hluti af öllum þeim vindorkukostum sem hefur verið sóst eftir og búið er að meta mikið af þeim. Þetta þarf að koma. Við eigum miklu meiri kost á að koma framkvæmdum áfram í vindorkunni hratt og vel þegar það kemst vonandi á beinu brautina þó að það sé talað um, miðað við kerfið eins og það er byggt upp hjá okkur núna, að það sé samt sjö, átta ára ferli að koma upp vindorkuveri.
Rétt í lokin, frú forseti. Það hefur ríkt ákveðið stórt stopp í raforkumálum þjóðarinnar á undanförnum árum. Það hefur gengið hægt hjá okkur. Það sem við erum að ræða hér snýr raunverulega að samkeppnishæfni landsins. Þetta snýst um góð lífskjör á Íslandi. Það hefur verið gæfa okkar Íslendinga síðustu 100 ár að rafvæða samfélagið, virkja vatnsaflið, nýta heita vatnið og svo eru þeir möguleikar núna sem snúa að vindorkunni. Við megum ekki vera kærulaus eða líta á þetta allt sem einhvern sjálfsagðan hlut. Það þarf að taka ákvarðanir sem snúa að þessu. — Ég hef lokið máli mínu, frú forseti.