154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

raforkulög.

541. mál
[19:29]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er flókið mál og þau eru ansi mörg þessi málefni. En það sem gerðist í síðustu kosningum var að átta flokkar voru kosnir á þing og þetta var í raun og veru niðurstaða kosninganna. Við getum verið ósammála og einstakir flokkar hérna fram og til baka eins og við þekkjum og ef við tölum um samstöðu í minni hlutanum þá sjáum við það líka að það getur meira að segja verið erfitt að vera í minni hluta. Það er líka þetta niðurbrot í stjórnmálum Vesturlanda, þessi fjöldi flokka, þetta eru orðnar meiri samsteypustjórnir, fleiri flokkar og við erum að sjá þetta út um allan heim. Þetta er eitt af mörgum málum sem við erum að fást við. Fyrir sumum gæti þetta verið aðalmálið, fyrir öðrum er þetta ekki eins mikilvægt. En ég held að það sem er að gerast núna og ég held að hafi gerst eins og eftir aðventustorminn í desember 2019, er að það sé meiri skilningur á þessu og í umræðum um flutningskerfið ætla ég rétt að vona að það sé meiri skilningur á mikilvægi þess og hvað Ísland er háð því að hér sé öflugt flutningskerfi raforku. Þá á ég bæði við byggðalínuhringinn og svæðisbundnu kerfin og dreifiveituna sem Rarik og Orkuveita Vestfjarða og öll þessi fyrirtæki, hvað þau heita, eru með. Ég held að skilningurinn sé að aukast. Við erum með markmið í orkustefnu til 2050 sem ég talaði um áðan, þverpólitískt plagg sem allir átta flokkar þingsins á síðasta kjörtímabili og þessu hafa unnið að og eru sammála um að unnið sé eftir. Þar er þetta markmið: Við ætlum að stefna að orkuskiptum, við ætlum að stefna að því að rafvæða íslenskt samfélag. Þá er þetta lykilatriði. Þá þurfum við líka, ásamt þessu öfluga flutningskerfi, öfluga orkuframleiðslu vegna þess að það er töluvert á að treysta að láta gangverk íslensks samfélags ganga bara á raforku.