raforkulög.
Frú forseti. Svo þess sé nú getið af minni hálfu þá eigum við auðvitað að sinna umhverfislega þættinum vel, enda kom ég aðeins inn á sjálfbærnina út frá þeim þáttum sem tengjast henni og þar með skiptir umhverfislegi þátturinn máli og sjálfbærni. Það tekur langan tíma að framleiða orku. Þetta er langt ferli og við sjáum að það hefur verið að lengjast. Það höfum við séð í gegnum tíðina. Ég er reyndar þeirrar skoðunar varðandi þessi háleitu markmið núna um rafvæðingu samfélagsins, orkuskiptin og annað, eins og ég kom inn á margoft áðan, að grunnþátturinn í því að það geti orðið að veruleika er öflugt flutningskerfi raforku og til þess að vera með öflugt flutningskerfi raforku þarftu töluvert orkumagn fyrir fámenna þjóð, þú þarft mikla orku bara til að viðhalda slíku kerfi og flutningum. Ég hygg að það að byggðalínuhringurinn var settur upp hérna fyrir 50 árum, tengt stóriðju, hafi verið gríðarlega mikilvægt fyrir samfélagið. Ég gefst ekki upp á að minnast á bók Jóhannesar Nordals sem kom út fyrir síðustu jól, Lifað með öldinni. Þar er nú ansi margt útskýrt nákvæmlega um þetta, byggðalínuhringinn, stóriðjuna og þetta samspil kerfisins sem við höfum síðan notið í 50 ár. Ég held að það vilji enginn snúa aftur til þess tíma sem var fyrir 1970 eða 1974, 1975. En þetta er nefnilega vandamálið og þess vegna þarf svo mikla fyrirhyggju þegar um er að ræða orkumál og í pólitík þar sem sumir hugsa kannski bara til næstu kosninga og eiga erfitt með að hugsa um langtímamál og hafa einhverja skýra sýn á það hvernig hlutir þurfa að þróast. Það er kannski vandamál almennt í pólitík, hvort sem er á Íslandi eða annars staðar. Ég held að leiðarljósið sem við þurfum í raun og veru að nýta okkur sé orkustefnan til 2050 þar sem er mjög vel orðað hvernig við eigum að standa að málum.