154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

raforkulög.

541. mál
[19:37]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Frú forseti. Þetta mál hér sem við ræðum er mikilvægt og ég fagna því að það hafi verið lagt fram. Hér fjöllum við um svokallaða forgangsraforku og hér er verið að bregðast við ástandi sem gerir það að verkum að það er ekki nægileg raforka til skiptanna og mikilvægt að tryggja heimilunum þann forgang sem þeim er nauðsynlegur og það er verið að gera það í þessu frumvarpi. Það hefur bara einu sinni verið þannig að heimilin í landinu hafa ekki haft lagalegan forgang þegar kemur að raforku og þetta frumvarp lýtur m.a. að því og það er ákaflega mikilvægt. Það er sem sagt verið að bregðast við stöðunni eins og komið hefur fram, þ.e. lágri stöðu miðlunarlóna fyrst og fremst en auk þess er mikil eftirspurn eftir raforku og í því ljósi er mjög brýnt að tryggja raforkuöryggi heimilanna og minni fyrirtækja, eins og segir hér í greinargerð.

Ég fagna þessu frumvarpi en það sem mig langaði að ræða sérstaklega í tengslum við þetta frumvarp er einmitt það að við höfum engan veginn verið að standa okkur nægilega vel þegar kemur að því að greiða fyrir því að það verði aukin orkuframleiðsla í landinu vegna þess að, eins og kom fram ágætlega í þessari umræðu, það lýtur m.a. að þjóðaröryggi að það sé til nægileg raforka í landinu. Við sjáum það núna þegar náttúruhamfarirnar dundu yfir í Grindavík og um tíma var óttast mjög að orkuframleiðslan við Svartsengi myndi stöðvast. Og þó svo að hættan sé enn fyrir hendi þá er hún nú minni sem betur fer og von um að svæðið róist nú aftur en sú sviðsmynd var teiknuð upp að hugsanlega gætu um 30.000 manns misst raforku og hitaveitu. Raforkunni hefði kannski verið hægt að miðla með öðrum hætti en þá í gegnum Suðurnesjalínu sem hefur nú verið þrautaganga að koma á laggirnar.

Það er að sjálfsögðu umhugsunarefni núna einmitt í þessum atburðum sem hafa verið að gerast á Reykjanesskaga að ef raforkan færi þar út sem framleidd er á svæðinu þá þyrfti náttúrlega að senda hana með Suðurnesjalínu til Reykjaness og þá höfum við línu sem þarf svo sannarlega að endurnýja. Það er búið að vera langt og strangt ferli sem vonandi sér nú fyrir endann á. Það er þó rétt að taka það fram að það hefur ekki enn verið samið við þá landeigendur sem eftir eru. En ég held að þarna verði ríkisvaldið líka að líta í eigin barm vegna þess að það er búið að vera margra ára ferli að reyna að koma þeirri línu í lag. Þar held ég að ríkisvaldið hafi ekki staðið sig nægilega vel í samningaviðræðum við landeigendur og það hafi verið gerð ákveðin mistök af hálfu ríkisvaldsins hvað það varðar og ekki hlustað á heimamenn og þeir jafnvel ekki virtir viðlits. Þetta er eitthvað sem við verðum að sjálfsögðu að laga.

Auk þess er mikilvægt að hafa það í huga, og mig langar að ræða það í þessu samhengi, að ég tel að þetta ferli við það að hefja orkuframleiðslu sé allt of flókið. Það eru of margar stofnanir sem koma að þessum ákvörðunum og ég held að sé nauðsynlegt, og það hlýtur að vera hægt, að þessar stofnanir geti samræmt sig hvað varðar þessa verkferla, að þeir sem ætli sér að fara í orkuframleiðslu þurfi ekki að fara þessa þrautagöngu sem það er. Ég þekki það bara persónulega. Ég hef t.d. kynnt mér þessi mál í Skaftárhreppi. Þar hafa verið áform um orkuframleiðslu í Hverfisfljóti. Sú vinna hófst árið 2003 og nú er 2023 og það er ekki enn komið leyfi fyrir þeirri framkvæmd, sem er um rúmlega 9 megavött í raforkuframleiðslu, þannig að við erum að tala um 20 ára ferli, þrautagöngu að fá að framleiða raforku sem síðan nýtist landsmönnum og ég tala nú ekki um því heimasvæði í Skaftárhreppi. Hér er náttúrlega bara fyrirkomulag sem gengur ekki upp. Við verðum að átta okkur á því. Þetta hefur gríðarlegan kostnað í för með sér fyrir þá aðila sem vilja fara í orkuframleiðslu og gerir það að verkum að fólk gefst einfaldlega upp. Það bara gefst upp.

Nú er það t.d. þannig að það þýðir í raun og veru ekkert að sækja um framkvæmdaleyfi fyrr en orkuframleiðsluleyfið liggur fyrir. Til að sveitarfélagið geti veitt framkvæmdaleyfi fyrir orkuvinnslu þá þarf orkuleyfið að liggja fyrir og svo eru menn bara í von og óvon um að það leyfi fáist. Það segir sig sjálft að það leggur enginn einstaklingur eða segjum bara landeigandi í slíka vegferð upp á von og óvon. Ég held að þetta samskiptaleysi sem ríkir á milli þessara ríkisstofnana sé svona stóra málið í þessu öllu saman sem við þurfum að laga. Við þurfum bara að laga þetta vegna þess, eins og hefur verið sagt hér og ég sagði hér áðan, að það verður að vera til næg orka í landinu út frá fyrst og fremst þjóðaröryggishagsmunum og auk þess erum við náttúrlega í þessum orkuskiptum sem er lögð gríðarlega mikil áhersla á og þau munu ekki eiga sér stað ef það er ekki til nein raforka í landinu, umframraforka til að sinna því.

Við þekkjum virkjunarferlið í neðri hluta Þjórsár, hvernig það hefur allt saman tafist. Auðvitað er þetta mikill kostnaður fyrir þjóðarbúið varðandi virkjunarkosti sem eru í rammaáætlun og búnir að fara í gegn, það er samt allt lagt í það hjá ákveðnum aðilum að koma í veg fyrir að þeir verði nýttir. Ég held að það séu bara í þessu ferli of margar ríkisstofnanir sem hafa ekki samráð og þetta tekur allt of langan tíma. Það er nauðsynlegt að einfalda þetta ferli, frú forseti. Við erum að tala um kannski bara smávirkjanir sem eru 1–2 megavött. Þegar ferlið er orðið svona langt og strangt og kostnaðarsamt og upp á von og óvon um að jákvæð niðurstaða fáist þá leggur orðinn enginn í þennan kostnað. Ég held að menn sjái það alveg sjálfir.

Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu, ég vil bara leggja áherslu á það að við verðum að hafa í huga að það á ekki að koma í veg fyrir orkuframleiðslu í okkar orkuríka landi. Við höfum þetta ferli sem er rammaáætlun. Þar eru ákveðnir virkjunarkostir sem eru friðaðir og svo er nýtingarflokkurinn. Þetta er ferli sem við höfum sett á laggirnar og það ríkir um það sátt og þess vegna eiga þeir virkjunarkostir sem eru í nýtingarflokki að ganga hratt og vel fyrir sig vegna þess að það hefur náðst sátt um þá. Við erum hins vegar að sjá allt annað í þeim efnum.

Auk þess vil ég bara taka undir það sem hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson sagði áðan um að við lítum á það sem sjálfsagðan hlut að hér sé bara næg orka og við lítum á hitaveituna sem sjálfsagðan hlut. En nú hefur það komið á daginn að nú eru hitaveitur margar hverjar komnar að þolmörkum við að anna eftirspurn eftir heitu vatni. Við sjáum það t.d. bara ef hitaveituframleiðsla færi út á Suðurnesjum hversu gríðarlega kostnaðarsamt það yrði fyrir samfélagið að bregðast við því með því að kynda dísilstöðvar og auk þess með raforku þá sjáum við hversu mikil verðmæti hitaveitan er og hún er gríðarleg lífsgæði. Þess vegna fagna ég sérstaklega, og rétt að nefna það hér, því átaki hæstv. umhverfisráðherra að auka fjármagn til hitaveiturannsókna. Það er mjög þarft verkefni og ég vil hrósa ráðherra sérstaklega fyrir það.

Að þessu sögðu þá vil ég kannski bara bæta því við í lokin að við erum að horfa upp á það að t.d. fiskimjölsverksmiðjur sem gætu nýtt raforku til sinnar framleiðslu fá ekki raforku til þess og þar er verið að keyra dísilstöðvar með tilheyrandi kostnaði. Svo er þessi loftslagsávinningur sem fer síðan fyrir bí. Þannig að það sjá allir mikilvægi þess að nýta okkar náttúruauðlindir með skynsömum hætti og við þurfum að einfalda þetta kerfi þannig að við séum ekki að horfa upp á orkuskort í okkar orkuríka landi.