raforkulög.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir ræðuna og ítreka líka þakkir fyrir þá umræðu sem hér er að fara fram. Það er auðvitað ekki neitt sérstaklega gleðilegt tilefni á bak við þetta mál sem við erum að ræða hér en gefur okkur þó a.m.k. ágætistækifæri til að ræða um stóru myndina. Mér fannst hv. þm. Björn Leví Gunnarsson fara alveg ágætlega yfir hana út frá sínum sjónarhóli. Hann kom inn á það í sinni ræðu að það væri framleidd mjög mikil orka í landinu en hún væri ekkert endilega að fara í réttu hlutina og talaði þar um hátt hlutfall orkunnar sem færi til stóriðjunnar. Það er vissulega rétt að það fer mjög hátt hlutfall orkunnar til stóriðjunnar. En það má líka benda á það í því samhengi að flutningskerfið okkar og margvísleg atvinnustarfsemi víða um landið væri ekki til ef ekki hefði verið farið í þetta, a.m.k. ekki með sama hætti og er í dag. En það er nú kannski ekki það sem ég ætlaði að gera að aðalatriði í þessu andsvari.
Ég hjó eftir því að hv. þingmaður nefndi það að hann væri ekki að tala um það að kippa einu álveri úr sambandi á morgun heldur er það auðvitað þannig að raforkusamningarnir renna út og þá væri mögulegt svigrúm til þess að hætta þá að selja orku til mögulega eins álfyrirtækis, ef við höfum það bara sem dæmi, eða þá að jafna hlutfallið með því að öll orka sem hér verður nýtt til viðbótar fari þá til smærri aðila. En mér hefur einmitt stundum fundist menn tala svolítið gáleysislega um þetta með álverin vegna þess að þetta eru risastórir vinnustaðir og þótt raforkusamningar losni eru þetta vinnustaðir sem eru algert hryggjarstykki á sínu svæði í raun og veru. Við getum nefnt á Akranesi og þar í kring og fyrir austan auðvitað á og svo erum við með eitt álver í Straumsvík líka sem er mikilvægur vinnustaður. Þannig að mig langaði að spyrja hv. þingmann: Sú leið sem hann nefndi, er hún ekki skynsamlegri, (Forseti hringir.) að auka frekar orkuöflun og láta það fara til minni aðila og minnka misvægið þarna á milli með þeim hætti frekar en að loka álveri?