raforkulög.
Forseti. Til að byrja með var mjög erfitt í rauninni að fá einhvern til þess að kaupa orku og uppbyggingin á vatnsaflsvirkjunum í upphafi var tvímælalaust þannig að það var bara leitað eftir einhverjum til þess að kaupa orkuna. Þar voru stórnotendur sem komu inn og hjálpuðu til við að byggja upp og það var mjög gott og nauðsynlegt. En síðan hafa hlutir þróast á sama hátt sem er áhugavert, það varð engin stefnubreyting í rauninni. Það var alltaf þannig að nýr stórnotandi kom og reddaði öllu, svona klassísk íslensk skyndilausn í staðinn fyrir að hugsa: Allt í lagi, hérna erum við með virkjunarkost. Í hvað ætlum við að nýta orkuna? Það er mjög auðveld lausn að setja bara eitt stórt stóriðjuálver, hvar sem það er, til þess að nýta alla orkuna og kalla það síðan eitthvert hryggjarstykki í atvinnu á því svæði, á meðan sama orka, nýtt í smærri og meðalstóran iðnað, myndi verða miklu viðameiri fyrir atvinnulífið á því svæði. Það er einfaldlega þannig. Þetta er léleg forsjárhyggja og það eimir enn þá af þessu upprunalega skipulagi, hvernig raforkukerfið byggðist upp, líklega af því að það er pínu dýrara að fara í framkvæmdina án þess að vera með öruggan og stóran og fjársterkan bakhjarl til að geta byrjað strax á að selja til. Þannig að nei, ég held í alvörunni að við ættum að breyta aðeins til og minnka stóriðjuna. (Forseti hringir.) Hvernig gerum við það? Svipuð verksmiðja gæti þróast yfir í að verða álendurvinnsluverksmiðja sem notar minni orku á meðan verið er að stækka annan iðnað á sama svæði með sömu orku og var áður send inn á þetta svæði og jafna þannig út smám saman þarna á milli.