raforkulög.
Frú forseti. Mér finnst þetta áhugavert. Maður fær sjaldan tækifæri til að heyra stefnu Pírata og Pírataflokksins í málefnum sem snúa að orkumálum þjóðarinnar, stóriðjunni, atvinnulífi og öðru þannig að mér fannst þetta áhugavert. Álverið fyrir austan, Fjarðaál, er gríðarlega mikilvægt fyrir Austurland og er alger forsenda að verða fyrir byggð á svæðinu. Þetta er kjölurinn í samfélaginu. Ég held að allir fyrir austan, almenningur, séu þar. 22% af heimilum á Austurlandi hafa einhvers konar launatekjur af þessu álveri, 22%, annaðhvort vegna þess að fólk starfar þar eða í gegnum verktakastarfsemi sem er víðtæk í kringum álverið. Síðan er það stefnan með uppbyggingu á flutningskerfinu. Ég minntist áðan á bók Jóhannesar Nordals, Lifað með öldinni, þar eru einmitt kaflar um þetta tímabil í kringum 1960 þegar verið er að stofna Landsvirkjun, hann er fyrsti stjórnarformaður Landsvirkjunar og var þar að mig minnir í 30 ár, kemur mjög sterkt að þessu. Það er mjög fróðlegt fyrir alla að lesa þessa kafla um hvernig þetta var, uppbyggingin á flutningskerfinu og mikilvægi síðan stóriðjunnar, hún er forsenda fyrir flutningskerfishringnum. Ef hún hefði ekki komið til værum við með allt annan rekstur, eyjarekstur, á þessum tíma. Þetta er alger forsenda fyrir því sem við þekkjum í flutningskerfinu í dag. Núna erum við efla það, ætlum að rafvæða samfélagið með öflugu kerfi og við ætlum að fara í orkuskipti. Það verður ekki gert nema með mjög öflugu kerfi og mikilli orku. Það sem skapar forsenduna fyrir því að við getum farið út í þetta er stóriðjan. Síðan er hægt að koma svo víða við, t.d. um samspil vindorku, jarðvarma og vatnsafls — það vill svo til að það er kannski hvergi hagstæðari eiginlega að framleiða orku í dag á grænum forsendum — og samspil þessara hluta með öflugu flutningskerfi.