154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

raforkulög.

541. mál
[20:11]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum sem hv. atvinnuveganefnd sameinast um og leggur fyrir þingið vegna aðstæðna sem eru fyrirséðar og eru okkur alls ekkert ókunnar. Bara til að rifja aðeins upp, þó að hv. þm. Björn Leví Gunnarsson hafi að einhverju leyti aðeins komið inn á það í sinni ræðu hér á undan mér, þá segir í frumvarpinu að við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Til að tryggja raforkuöryggi notenda raforku, annarra en stórnotenda, ber markaðsráðandi vinnslufyrirtæki að tryggja framboð forgangsraforku á heildsölumarkaði til notenda, annarra en stórnotenda…“

Það sem er innihaldið í þessu er það að tryggja að almenningur, fólkið í landinu, og smærri fyrirtæki hafi þann aðgang að raforku sem er nauðsynlegur þegar og ef, eða kannski að öllum líkindum þegar, til skerðinga kemur vegna þess að ekki er nægilega sterk staða í lónum. Þegar ég segi ekki sterk staða í lónum meina ég að ekki sé nægilegt vatn til að framleiða þá raforku sem búið er að ráðstafa einhvers staðar.

Ég ræddi þetta áður í andsvari við hv. þm. Jón Gunnarsson og var að reyna að velta upp spurningum, sem ég er ekki viss um að ég hafi alveg fengið svar við frá hv. þingmanni en það er allt í lagi, um hvort þetta séu ekki aðstæður sem við verðum ekki bara að gera okkur grein fyrir heldur gera ráð fyrir. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að gert er ráð fyrir þessu að einhverju leyti í plönum þeirra aðila sem framleiða raforkuna og endurselja hana, þ.e. að til þess geti komið að staðan sé knöpp.

Það er augljóst þykir mér, virðulegi forseti, að það er gengið aðeins of nærri línunum með akkúrat þetta þegar staðan er svoleiðis að við horfum hér fram á skerðingar og getum þá ekki gert ráð fyrir því að staðan sé þannig í lónunum í ár að hægt sé að tryggja, nema til komi sérstakt bráðabirgðaákvæði í lögum, forgang til heimilanna og smærri fyrirtækjanna í landinu. Þetta eru náttúrlega aðstæður, sveiflur sem við er að búast af hinni sömu náttúru og við reiðum okkur á þegar við öflum orkunnar. Skárra væri það nú að við reyndum að gera okkur aðeins grein fyrir því hvernig náttúrulegar sveiflur virka þegar við á annað borð reiðum okkur svona vel og mikið á náttúruna. Það má kannski færa fyrir því rök að við höfum ekki gert það þegar við verðum við gegndarlausum beiðnum um að afhenda raforku sem hugsanlega er ótrygg vegna þess að það getur verið lágt í lónum, svo að það sé sagt.

Hér er þingmönnum tíðrætt um frekari orkuöflun og ég fann mig þess vegna knúinn til að koma upp þó að ég hafi, í upphafi alla vega, verið að vanda mig við að reyna að halda mig við efnisatriði málsins. En í ljósi þess að þingmönnum hefur verið tíðrætt um orkuöflun og sumir hverjir þrátyggja þá möntru, sem hefur flogið hér fjöllunum hærra, að hér sé nauðsynlegt að ráðast í stórfellda orkuöflun — hér voru einhvern tímann nefndar tölur um tvöföldun orkuöflunar, ég hef reyndar ekki heyrt mikið um þá umræðu akkúrat undanfarið — þá langar mig að benda á eitt. Vinna og afrakstur vinnu, sem ef ég man rétt var samstarfsverkefni Landsvirkjunar, umhverfisráðuneytisins og Orkustofnunar, nýleg skýrsla sem kom út sem var unnin af Dönum, ef ég tók rétt eftir, bendir á það sem hefur verið í þessari sömu umræðu um aukna orkuöflun eða þörf á aukinni orku, að með betri nýtingu á þegar framleiddri orku getum við náð um 8% út úr kerfinu, sumpart með tiltölulega litlum eða engum tilkostnaði, einhverjum hluta með einhverjum tilkostnaði, en þetta eru 8%. Til samanburðar nota heimilin í landinu, þau hin sömu og við erum að reyna að verja með bráðabirgðaákvæði sem er til umræðu í akkúrat þessum dagskrárlið hér, 5%. Horfum bara aðeins á þennan stærðarskala. Þetta eru lágar tölur og við eigum auðvelt með að bera þetta saman. Með betri nýtingu á orkunni sem við framleiðum nú þegar getum við náð í þá raforku sem vantar og gott betur.

Einhvers staðar hefði nú þótt sómi að því, og ég hef nú stundum notað þau orð í þessum umræðum hér í þingsal, að fara vel með það sem við eigum. Við eigum gnægð af auðlindum, það er alveg rétt, en við höfum líka gengið mjög frekjulega um þær að mínu mati, af sömu eða sams konar frekju og yfirgangi og við sjáum afraksturinn af, ef það má orða það þannig, í því að maðurinn fer langt út fyrir getu jarðarinnar til þess að standa undir sér. Þetta er grunnurinn að áhrifum á loftslagsmálin, þetta er grunnurinn að hnignun líffræðilegs fjölbreytileika, þetta er grunnurinn að mjög mörgum vandamálum. Og ætlum við að leysa það með þeirri einu hugmynd að ráðast í stórfellda orkuöflun til viðbótar? Það er jú akkúrat hluti ástæðunnar fyrir því að við komumst í þessi vandræði, bara svo að því sé haldið til haga.

Ég fagna alla vega þessari skýrslu sem ég vísa í hér og ef ég hjó rétt eftir í fjölmiðlum gerði Daninn sem vann skýrsluna líka þær athugasemdir að honum fyndist lítið um upplýsingar og mátti lesa í orð hans sem svo að Íslendingar hefðu greinilega ekkert verið að velta þessu mikið fyrir sér, með öðrum orðum, þeir ættu að fara bara vel með það sem þeir væru nú þegar að framleiða. Gott og vel, skýrslan liggur fyrir og ég held að það sé fullt tilefni til þess að horfa til hennar sem eins af þeim liðum sem við getum horft til þegar kemur til stöðu eins og er vænt núna, að ekki sé nægt rafmagn í pípunum fyrir það sem er í gangi eins og staðan er í dag. Og algjörlega sjálfsagt mál og ég heyri ekki betur en að þingmenn séu sammála því, þó að málið gangi aftur til nefndarinnar til frekari umræðu og það er gott og vel, að það sé nauðsynlegt að forgangsraða og tryggja það að heimilin og almennir notendur og smærri fyrirtæki fái nægt framboð af svokallaðri forgangsraforku komi til skerðinga.

Hér hefur aðeins verið rætt um rammaáætlun og ég hét því í andsvari við hv. þm. Jón Gunnarsson að ég ætlaði ekki í söguskýringu á rammaáætlun en kannski er það ágætt vegna þess að það verkfæri sem komið var á hér fyrir um tíu árum síðan miðar að því, eins og ég sagði í andsvörum við hv. þingmann, að reyna að gæta að jafnvægi á milli verndar og nýtingar. Það hallar verulega á náttúruverndarsjónarmið í þessari umræðu um aukna orkuöflun í samfélaginu þykir mér og ég veit að ég er ekkert einn um þá skoðun. Það er ástæða fyrir því að þetta verkfæri er eina verkfærið sem við, eins og staðan er í dag, treystum til þess að reyna að vega og meta með þessum hætti. Áður fyrr, og ég minntist nú á það í mínu andsvari, stóðu fyrirrennarar okkar hér frammi fyrir því að taka ákvarðanir eða afstöðu til einstakra framkvæmda sem gjarnan splittuðu heilu samfélögunum og/eða voru, eins og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson kom ágætlega inn á áðan, einhvers konar ein stór lausn.

Hér bar orð og athafnir VG-liða á fyrri tíð á góma. Þá var nú ekki lítið grínið gert að okkur í VG, eða fyrirrennurum okkar þar, fyrir að hafa bent á það að við ættum ekki að setja eggin öll í sömu körfuna og við þyrftum að hugsa í lausnum og kannski eilítið frjálslegar, svo að ég noti mín eigin orð, og reyna að sjá fyrir okkur einhverja aðra möguleika og einhverjar aðrar hugmyndir en akkúrat eina staka lausn sem myndi leysa allt. Og á öllum þessum árum höfum við séð, til að mynda með aukinni nýsköpun og auknum stuðningi við nýsköpun, akkúrat þessa hluti raungerast. Ég tek undir orð hv. þm. Björns Leví Gunnarssonar þegar hann segir hér að við eigum mýmörg tækifæri og mýmargar hugmyndir sem eru vel á veg komnar sumar hverjar og eru vaxandi stoð undir íslensku samfélagi. Hverju skila t.d. skapandi greinar inn í útflutningstekjur? Eru það ekki einmitt16%? Ekkert af þessu er svo orkufrekt að það þurfi að reisa heila virkjun fyrir það en sannarlega þurfa þessar greinar orku að nota.

Vernd líffræðilegs fjölbreytileika og afstaða til verndar líffræðilegs fjölbreytileika og jafnvel endurheimtar á líffræðilegum fjölbreytileika er eitthvað sem fer sem betur fer vaxandi og hafa sum þeirra sem hafa velkst hvað lengst í þessum umræðum um umhverfismál, og þá loftslagsmál í seinni tíð, bent á að það sé í rauninni kannski brýnna og jafnvel meira aðkallandi verkefni heldur en loftslagsváin sem við erum þó öll, eða nær öll alla vega í þessum sal, orðin sammála um að sé mjög mikilvægt að ná tökum á og erum að leggjast á eitt með það. Vernd líffræðilegs fjölbreytileika er mál sem við verðum að ná skýrum tökum á og verðum að ná djúpum skilningi á til að leggja til grundvallar því þegar við tökum ákvarðanir eins og til að mynda það að ráðast í stórvirka orkuöflun.

Ég fór yfir hér í ræðu, líklega í gær, alveg eins og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson kemur inn á, þ.e. að ósnortin náttúra er líka verðmæti í sjálfu sér. Ég minnti þá á þær tölur sem okkur eru kunnugar, þ.e. að 43% af síðustu ósnortnu víðernum í Evrópu er að finna á Íslandi einu. Það eru verðmæti. Þau felast ekki bara í því að brjóta landið í aukna orkuöflun eins og kyrjað er víða. En ferlið er sannarlega flókið, þ.e. frá hugmynd til framkvæmdar, og það eru margar stofnanir sem koma að þessari vinnu eins og hv. þm. Birgir Þórarinsson kom inn á hérna áðan. En ferlið á að einhverju leyti líka að vera flókið. Er það eðlilegt að ég geti bara fengið hvaða hugmynd sem er, til að mynda að virkja ósnortna jökulá sem rennur að mestu leyti í farvegi eldhrauns sem nýtur verndar samkvæmt annarri löggjöf, og hún eigi bara sjálfvirkt að ná fram að ganga? Er það bara algerlega eðlilegt? Ég segi nei, það er bara ekkert eðlilegt að það nái fram að ganga án þess að að því komi fleiri aðilar en ég sem fékk þessa góðu hugmynd, svo að ég taki dæmi.

Mat á umhverfisáhrifum er verkfæri sem við fundum ekki upp sjálf, Íslendingar, en erum svo lánsöm að hafa einmitt tileinkað okkur á grundvelli þess að vera áhangendur, skulum við segja, í Evrópusamstarfinu, þ.e. í gegnum okkar EES-samning. Af því að ég er að tala um ferlið og ferli rammaáætlunar í þessu samhengi er hér í þessum sal tekin ákvörðun annars vegar um það hvort skoða megi möguleikann á nýtingu einhvers kosts — ég legg áherslu á orðið skoða, það að virkjanakostur eða hugmynd að virkjun fari í eitthvað sem heitir nýtingarflokkur þýðir ekki, ef menn lesa lögin, að hann skuli virkja — eða að einhver kostur skuli fara í verndarflokk. Þar hins vegar segja lögin mjög skýrt: Hann skal líka vernda gegn orkuvinnslu. Annað lendir í biðflokki sem þarf að skoða betur og það er gert á forsendum sérfræðinga eins og við þekkjum. Þegar fyrir liggur ákvörðun þingsins um að eitthvað sé komið í nýtingarflokk, eins og sagt er, þá er akkúrat þetta ferli um mat á umhverfisáhrifum eftir. Þá er þessi vinna eftir sem við erum búin að binda í lög, eitthvað sem við treystum á til þess að ganga úr skugga um: Var þessi hugmynd yfir höfuð góð þó að Alþingi hafi afgreitt hana í nýtingarflokk? Það er eins og sumir aðilar geti ekki skilið hvert eðli verkefnisins er. Það er til að tryggja jafnvægi á milli verndar og nýtingar.

Ég verð alltaf jafn hissa á því, virðulegur forseti, þegar afgreiðsla í nýtingarflokk á einhvern veginn að þýða að það eigi að virkja hlutaðeigandi kost. Hún bara þýðir akkúrat ekki það. Hins vegar raungerist það oft og verður að veruleika og það er bara hið besta mál vegna þess að undir liggur einhvers konar faglegt mat á því hvort hægt sé að nýta einhvern ákveðinn kost, eða í þessu tilfelli, svo að við tökum vatnsaflsvirkjanir, vatnasvið eða vatnssvæði, eða ekki. Ef það liggur fyrir ákvörðun þingsins, með rökum, að hér skuli þetta tiltekna vatnasvið og þessi tiltekna á og allar hugmyndir um virkjunarkosti teknar út af borðinu vegna þess að viðkomandi hugmynd fer í verndarflokk þá erum við búin að taka ákvörðun um það með friðlýsingu ráðherra í framhaldinu. Á ráðherranum hvílir skylda samkvæmt lögunum að gera það.

Höfum það bara í huga að þó að ferlið sé flókið, eins og hv. þm. Birgir Þórarinsson kom inn á, og það séu margar stofnanir sem koma að þessu þá er það líka af ástæðu. Þegar ég fæ hugmyndina, hver sem hún er — og auðvitað eru allar mínar hugmyndir góðar, okkur þykir það öllum sjálfum, ekki satt, þegar við fáum góðar hugmyndir? — þá fæ ég aukaaugu á það og það er bara alveg sjálfsagt að mínu mati að við gerum það með ferli sem tekur vel utan um það og með skilvirkum hætti. Ég er ekkert að mæla því bót að eitthvað dragist úr hemju, bara alls ekki, en hins vegar að það sé gert með skilvirkum hætti og að við lútum þá líka þeirri niðurstöðu eða lögum okkur að aðstæðum. Virkjun er ekki það sama og virkjun, við gerum okkur grein fyrir því líka.

Virðulegi forseti. Ég vil hér að lokum nota þessa mínútu mína af því að ég heyri í ræðum einstakra þingmanna að gefinn er ádráttur um eitthvað sem ég sagði hér á fyrstu metrum eftir að ég tók sæti sem þingmaður. Mér þykir gott að heyra að það eru fleiri farin að velta þessu fyrir sér. Á sama tíma og við tókum djarfar ákvarðanir um að ráðast í meiri háttar orkuöflun í þágu einhvers konar einnar framkvæmdar, segjum stóriðju á einhverjum stað, þá skipti það vafalaust mjög miklu máli á þeim tíma þegar ákvörðun var tekin og hún hefur sjálfsagt verið rétt þegar hún var tekin. Nú kalla ég eftir því þegar við horfum á loftslagsvána og mikilvægi orkuskipta og þess að við nýtum raforkuna sem við eigum til þess að mæta þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir, þessi heimur, af því að við höfum gengið svo gegndarlaust á gæðin, að við tökum jafn djarfar ákvarðanir. Byrjum alla vega á samtalinu um það; um að ráðstafa þegar framleiddri orku til þeirra verkefna þar sem er þörf á því. Tökum þessa umræðu og klárum okkur af henni (Forseti hringir.) vegna þess að það er alls ekki sjálfsagt mál að ráðast í endalaust freka orkuöflun eins og það sé eina lausnin fram á við.