154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

raforkulög.

541. mál
[20:26]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Kannski spurning til hv. þingmanns: Er það eðlilegt að það taki 20 ár að leggja raflínu til að tryggja orkuflutninga um landið, til að nýta orku betur, græna orku sem er framleidd á Íslandi, til að auka orkunýtni kerfisins sem er lykilatriði? Hv. þingmaður kom inn á í sínu máli orkunýtni og ég er bara sammála um það. Þegar við vorum að taka heildarlöggjöfina um raforkulögin, ég var framsögumaður þess máls fyrir tveimur, þremur árum í atvinnuveganefnd, þá lögðum við mjög mikla áherslu einmitt á glatvarma, beintengingu við virkjanir til að nýta í grænni starfsemi og slíka þætti. Það er lykilatriði. Ég held að flestir Íslendingar séu sáttir við hvað hefur áunnist og hvert við erum að stefna, hvernig ætlum að fara með orkuna, en það er lykilatriði að nýta orkuna í grænu orkukerfi þar sem þú nýtir vatnsafl, jarðvarma og vindorku til að spila með öflugu flutningskerfi til að ná einmitt sem bestri orkunýtni í heildarkerfinu, það er nákvæmlega þetta. Samspil vatnsafls og vindafls getur skapað gríðarleg tækifæri á Íslandi, gríðarleg. Það kemur meira að segja í ljós þegar þetta er skoðað, þessar tvær myllur í hafinu við Búrfell, að nýtni af þeim vindmyllum er með því besta sem gerist, 40–45%, meðan á heimsvísu í vindorkunni er þetta hlutfall nýtni um 28%. Það vill bara svo til að framleiðsla á Íslandi með vindi getur verið mjög hagstæð, er á við okkar öflugustu og bestu vatnsaflskosti varðandi kostnað. Þannig að spurningin er: Er hv. þingmaður sammála mér um þessa orkunýtni kerfisins og samspil þessara þátta í gegnum orkuflutningskerfið og að þannig hámörkum við virðið fyrir íslenskt samfélag?