raforkulög.
Frú forseti. Ég held að það séu allir sammála því að 20 ára tími eða jafnvel lengur að koma upp raflínu sem er hluti af flutningskerfi raforku um landið sé allt of langur tími. Ég hygg að það sé jákvætt að Landsnet hefur breytt sinni stefnu og nálgun sem snýr að því hvernig eigi að koma samtalinu áleiðis. En það er mjög alvarlegt hvað það hefur tekið langan tíma, það er nákvæmlega þetta, þetta mikla þjóðaröryggismál sem græna orkan er og flutningur á henni um landið og nýting hennar. Og náttúrlega núna þegar við erum að fara í orkuskiptin og núna þegar þessi ákvörðun er tekin um kolefnishlutlaust Ísland 2040, þar sem við ætlum fyrst og fremst að treysta á rafvæðingu landsins, þá verður þetta flutningskerfi miklu, miklu mikilvægara út frá öryggissjónarmiðum heldur en við höfum þekkt hingað til. Þá getum við ekki brennt bara olíu við hliðina á okkur og hitað upp húsin eða hvað það er. Er hv. þingmaður sammála mér um mikilvægi þess að kerfið sé öflugt sem snýr að flutningskerfinu varðandi þau markmið sem við ætlum að ná í gegnum rafvæðingu Íslands og orkuskiptin og kolefnishlutlaust Ísland árið 2040?