154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

raforkulög.

541. mál
[20:40]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að ég skilji það sem hv. þingmaður er að meina, þ.e. hvort mér finnist þetta eðlilegt og ég var að reyna að svara hv. þingmanni þessu. Ég ætla ekki að fara efnislega inn í akkúrat þetta mál því að á því eru margir gallar og það eru margir vinklar og margar sögur af því. Geri ég ekkert lítið úr því að einhvers staðar hefur þetta þótt góð hugmynd. Ég er ekki að gera það. Ég er þeirrar skoðunar, hafandi lesið öll þessi gögn aftur á bak og áfram, að við erum bara að fá frekari dæmi og sannanir þess að þetta tiltekna mál er ekkert sérstaklega góð hugmynd. En gott og vel. Hv. þingmaður spyr hvort ég telji eðlilegt að hlutirnir geti tekið 20 ár. Það sem ég er að reyna að segja er að ef ég undirbygg hugmynd mína svo vel og gagnlega og er tilbúinn að laga mig að aðstæðum og hugsanlega því regluverki eða lögum eða lagaákvæðum sem mér var bara ekki kunnugt um þegar ég lagði af stað í vegferðina þá getur það tekið tíma. Það getur gert það. Það er kannski ekki í lagi að það taki 20 ár en ef hugmyndin er eftir 20 ár engu að síður enn þá, ég vil segja glórulaus, er hún þá ekki andvana fædd, hv. þingmaður? Er þá eitthvert vit í því að vera að keyra hugmyndin áfram? Þetta snýst ekkert um einhverja skipulagða andstöðu við góðar hugmyndir mínar, hv. þingmaður. Þetta snýst um það að við virðum þær upplýsingar og þau gögn og það sem fyrir liggur, þá aðila sem eru að reyna að ráða okkur heilt þegar við fáum alls kyns hugmyndir, margar þeirrar misvitrar. En vegna þess að ég endaði síðasta andsvar mitt á að segja að allar ákvarðanir væru réttar þegar þær eru teknar þá leiðrétti hv. þm. Óli Björn Kárason mig og sagði að því væri akkúrat öfugt farið. Allar ákvarðanir eru rangar þegar þær eru teknar. Það á kannski bara við í þessu tilfelli, hv. þingmaður. [Hlátur í þingsal.]