raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmanni og hans lokaorðum um verðmætin sem felast í náttúrunni okkar. Mig langar þó að nota tækifærið og biðja hv. þingmann sem hefur verið tíðrætt í ýmsum andsvörum og ræðum um einhverja óeiningu í ríkisstjórninni og að það gangi hvorki né reki vegna þess að ríkisstjórnin komi sér ekki saman um alla skapaða hluti, að leggja ekki til grundvallar því mati sínu orð eins þingmanns, hv. þm. Jóns Gunnarssonar. Það er óþarfi. Hér sitjum við skælbrosandi stjórnarþingmennirnir í salnum með hv. þingmanni og hann hefur enga ástæðu til að halda að þetta sé allt saman á einhverri niðurleið.
Ég vil líka nota tækifærið og minna á að það var einmitt í tíð þessarar ríkisstjórnar sem 3. áfangi rammaáætlunar, sem hafði sannarlega ekki verið afgreiddur af þinginu, var afgreiddur. Ég vísa þessu lóðbeint til föðurhúsanna. Hv. þingmaður og aðrir þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af því að hér sé allt í einhverju stoppi þegar kemur að orkumálum. Mig langar hins vegar að nota tækifærið, vegna þess að ég endaði ræðu mína áðan á því sem ég hefði kannski átt að orðlengja örlítið frekar, að spyrja hv. þingmann út í það að á sínum tíma voru teknar stórar og miklar ákvarðanir, sumar kannski stórkarlalegar eins og hv. þingmaður sagði áðan, um að ráðast í meiri háttar orkuöflun til handa einhverri einni fabrikku eða einu stóriðjuveri. Það voru stórar og miklar ákvarðanir sem voru sjálfsagt réttar á þeim tíma. Deilir hv. þingmaður þeirri skoðun minni að nú séum við á þeim tímamótum í ljósi loftslagsvárinnar og þeirra krafna og skuldbindinga sem höfum undirgengist að kominn sé tími á að við endurskoðum hvernig við ráðstöfum þegar framleiddri orku og forgangsröðum henni í þágu þess að reyna að stemma stigu við loftslagsvánni?