raforkulög.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og innleggið í þetta. Aðeins áður en ég svara seinni hlutanum: Já, já, menn eru auðvitað hlæjandi hér úr hvor úr sínum stjórnarflokknum. Auðvitað eru menn vinir hérna í þinginu og allt það en skoðanamunurinn og áherslumunurinn liggur ekki bara hjá hv. þm. Jóni Gunnarssyni. Það held ég að sé alveg óhætt að fullyrða. Þótt til að mynda hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson og hv. þm. Birgir Þórarinsson hafi orðað hugsun sína öðruvísi en hv. þm. Jón Gunnarsson fer ekkert á milli mála, þótt menn séu vinir hér á göngunum, að meiningarmunurinn er algjör og mikill. Ég minni á að hér var talað um að við værum í þeirri stöðu að ógna þjóðaröryggi, hvorki meira né minna. Það voru orð hv. þingmanna.
Ef við stæðum frammi fyrir því vali, sem ég held að við stöndum ekki frammi fyrir, að loka álveri til að nota orkuna með öðrum hætti myndi ég ekki styðja það. Við getum heldur ekki gert það því að þetta er allt bundið í raforkusamninga. Þeir renna út og hvað gerum við þá? Eigum við að þrýsta á að starfsemin haldi ekki áfram jafnvel þótt orkukaupandinn myndi vilja halda henni áfram? Alls konar flækjustig myndu fylgja því, til að mynda að þessi fyrirtæki hafa gríðarlega mikla atvinnuhagsmuni á þeim svæðum þar sem þau eru eins og ég hef rakið hér í ræðu og andsvörum. Ég er alveg þeirrar skoðunar að sú orkuöflun sem bætist við og sú aukna nýting sem verður til eigi auðvitað að vera að fullu leyti í grænni hugsun. Ég myndi telja að það væri mjög æskilegt að hlutfall stóriðjunnar myndi minnka í heildarorkunotkuninni en það væri kannski frekar með því að við myndum framleiða meiri orku til að ýta undir hinn hlutann.