raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni andsvarið. Örlítið í framhaldi af þessu orðalagi með skoðanamuninn. Eins og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson kom réttilega inn á hefur þróunin í hinum vestræna heimi verið sú að hinum mismunandi flokkum og hreyfingum fjölgar og röddunum eftir því. Ég vil einmitt meina að það endurspegli vilja lýðræðisins að fólk með mismunandi skoðanir setjist við sama borð til að reyna að komast að einhverri niðurstöðu og ég tók dæmi um hvernig við gátum og gerðum það með sóma og sann þegar þessi sama ríkisstjórn afgreiddi 3. áfanga rammaáætlunar. Enn er ég ekki sammála því að það sé svo mikill skoðanaágreiningur að við komumst ekkert áfram, þótt það þjóni sjálfsagt pólitískum hagsmunum að halda því svolítið reglulega á lofti.
Ég skil hv. þingmann þannig að hann sé ekki alveg sammála mér með það að endurskoðun á ráðstöfun þegar framleiddrar orku sé möguleiki heldur snúist þetta um aukna orkuöflun. Hv. þingmaður bendir hins vegar á hið augljósa, að verðmæti náttúrunnar er líka mikið og það eru auðvitað takmörk fyrir því hvað orkuöflunin getur vaxið. Það eru endimörk á vextinum. Hvernig eigum við þá í ósköpunum að mæta þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir í ljósi loftslagsvárinnar þegar við vitum að hluti vandans að við erum komin í þessa stöðu er vegna þess hvernig við höfum gengið gegndarlaust á gæðin, svo ekki sé talað um hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar sem miðar að því að reyna að mæta þörfum samtímans án þess að ganga á þarfir komandi kynslóða? Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að við getum komist á þessa braut án þess að ráðast í aukna orkuöflun ef við ætlum ekki að sameinast um að vert sé að taka umræðuna um að forgangsraða þegar framleiddri orku í þágu þess að ná utan um og koma í veg fyrir aukna loftslagsvá í heiminum?