154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

raforkulög.

541. mál
[21:00]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir andsvarið. Ég hjó eftir því líka að hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson talaði um að flokkum væri að fjölga út um alla Evrópu og allt þetta. Það er ofur einfaldlega staðan og ég deili ekki söknuði manna yfir þeim tíma sem hér var áður þar sem ægivald tveggja flokka yfir samfélaginu var óslitið og óskorað. Það er fínt að komið sé ágætisuppbrot í það. Mér sýnist hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson jafnvel vera sammála mér í því. [Hlátur í þingsal.]

Ég trúi því að við þurfum að framleiða meiri orku til að standa í orkuskiptunum. En við þurfum líka að huga að því að nýta betur það sem við erum að gera og þurfum líka að leggja eitthvað á okkur til að minnka sóun og breyta lífsháttum og venjum þannig að við þurfum ekki að nýta jafn mikla orku. Það getur líka vel verið að einhverjar tækniframfarir verði til þess að það bætist við þá orku sem við höfum til ráðstöfunar án þess að þurfa að virkja meira. Ég er þeirrar skoðunar að ef núverandi stórnotendur orku vilja halda áfram starfsemi eftir að samningarnir renna út munum við vera í þeim pólitíska veruleika að hagsmunir samfélagsins af því að halda áfram með þeim hætti snúast ekki bara um loftslagsmálin heldur líka staðbundna atvinnuhagsmuni og annað í þeim dúr. Við þurfum líka að taka tillit til alls þess.

Ég er ekki sammála hv. þingmanni í því að við förum svo létt í gegnum þessi orkuskipti án þess að framleiða meiri orku á Íslandi. Ég er algerlega sannfærður um að það er hægt að framleiða meiri orku á Íslandi án þess að ganga um of á náttúruna en ég tek að öðru leyti undir það sem hv. þingmaður segir, að við þurfum auðvitað að hegða okkur með þeim hætti að við séum ekki að ganga á rétt framtíðarkynslóða til að lifa eðlilegu lífi.