154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

raforkulög.

541. mál
[21:03]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég ætla svo sem ekki að lengja þessa umræðu mjög mikið en get ekki annað en komið hér upp sem formaður atvinnuveganefndar og komið aðeins inn á vissa þætti sem að þessu máli koma. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir að flytja málið fyrir hönd allrar atvinnuveganefndar sem sameinaðist um að flytja þetta mál hér á hinu háa Alþingi. Það hefur verið farið ágætlega yfir það hvers vegna við erum á þeim stað sem við erum í dag. Það má sömuleiðis velta því fyrir sér og hefur verið mjög áhugavert að fylgjast með umræðunni sem hefur átt sér stað um raforkuöryggi. Við erum svona næstum því komin hér í umfjöllun um rammaáætlun en allt tengist þetta og mjög áhugavert að hlusta á þetta. Ég heyrði að hv. þm. Sigmar Guðmundsson hafði, held ég, þó nokkuð gaman af því að heyra þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna skiptast á skoðunum, og ég hafði það sömuleiðis, um það hvernig menn sæju hlutina fyrir sér, hvort við ættum að auka við virkjanir eða hvernig við gætum betur farið með og nýtt orkuna betur. Sömuleiðis hafa menn velt því fyrir sér hvort það ætti að loka álverum o.s.frv.

En staðan er bara einföld eins og hún blasir við okkur í dag. Það er ákveðin punktstaða uppi. Það stefnir í að það verði ákveðinn skortur á framboði raforku og verkefni okkar, og það er það sem þetta frumvarp fjallar um, er að tryggja hag almennings. Það er stóra verkefnið í þessu máli, tryggja hag almennings fyrir því að hafa aðgang að forgangsorku sem er lykilatriði í því að halda uppi þeim lífskjörum sem við höfum byggt á. Gleymum því ekki að eitt af óskabörnum þjóðarinnar, getum við kannski kallað það, er Landsvirkjun. Þetta er eign almennings sem framleiðir hér orku og vitanlega á almenningur að sitja fyrir þegar kemur að nýtingu á raforku. Það verður þannig vonandi um ókomna tíð og þess vegna erum við að bregðast við með þessu frumvarpi. Hvernig sjá menn síðan framtíðina fyrir sér? Menn hafa velt því vel upp í umræðunni og ég get alveg skipt um fætur, stigið stundum til hægri og stundum til vinstri eins og ágætir miðjumenn gera stundum, þá stikla menn á stóru. En aftur á móti er það þannig í hlutarins eðli og þannig er ég nú bara sjálfur innbyggður að við eigum að reyna að nýta okkur þær auðlindir sem við höfum aðgang að. En vissulega þurfum við alltaf að ganga hægt um gleðinnar dyr hvað það varðar og hafa að leiðarljósi í því samhengi að við eigum að nýta þær auðlindir sem við höfum á sjálfbæran hátt. Náttúran á vissulega alltaf að vera í fyrsta sæti en stundum þurfum við að taka stór skref eins og við höfum gert í gegnum tíðina. Hv. þm. Orri Páll Jóhannsson komst þannig að orði, virðulegur forseti, að fara fram með nautshætti eða vera eins og naut í flagi. Sem betur fer eru flestir hættir að hleypa nautunum út og hafa þau bara innan dyra eins og staðan er í dag og ala þau þannig. Ég myndi ekki vilja orða hlutina þannig en vissulega held ég að öll okkar sem að þessu máli koma hugsum alltaf um náttúruna í fyrsta sæti og síðan er bara áherslumunur á því hversu langt við viljum ganga í því að auka við í raforkunni eða hvernig við viljum hafa það. Sumir tala um að auka lífsgæði og annað og við tölum hér reglulega um græn orkuskipti o.s.frv. Allt kostar þetta orku.

Ég get ekki annað en komið að því, úr því að við erum farin að tala um rafmagn og orku yfir höfuð, að við Íslendingar framleiðum mikið af matvælum. Vissulega höfum við í gegnum aldir nýtt sjávarauðlindina og við þekkjum það með landbúnaðinn sömuleiðis, fiskeldi er einn af þeim þáttum og við þekkjum öll umræðuna um sjókvíaeldi og þá neikvæðu umræðu sem þar hefur skapast og sumir hafa t.d. gengið það langt að segja bara: Setjum þetta allt upp á land. Gott og vel. En hvað þarf til þegar við tölum á þann veg, förum þangað og framleiðum allan fisk upp á landi? Þá þurfum við fyrst og fremst orku. Það þarf orku til að knýja þær dælur sem við notum til að dæla upp bæði sjó og vatni og ágætt dæmi er t.d. ein stöð suður með sjó, skulum við segja, hún þarf 37 MW í sína framleiðslu, stöðin þar við hliðina þarf 25. Það var í fyrradag í fréttum að það var verið að gera samninga við aðra stöð sem þarf 5 MW. Við getum haldið svona áfram lengi og við þurfum orku til allra þátta í okkar lífi og við skrúfum ekkert svo einfaldlega fyrir hana. Það er auðvelt að standa hér uppi og segja: Heyrðu, við skulum nú bara breyta um lifnaðarhætti, horfum okkur nær, drögum úr þessu og drögum úr hinu. Það er gott og gilt markmið. En það hefur nú oft verið talað um það þegar menn ætla að beygja af einhverri leið að við séum að fara að snúa við olíuskipi og það þurfi töluverðan aðdraganda. Ég held að í þessu samhengi sé þetta miklu stærra olíuskip en svo að því verði snúið við á einu augabragði.

Við þurfum í því samhengi væntanlega til framtíðar að horfa til þess að nýta frekar þá orkukosti sem ganga hvað minnst nálægt náttúrunni, ef við getum orðað það þannig. Það þarf væntanlega í framtíðinni að bæta töluvert mikið við, eins og sumir hv. þingmenn hafa komið inn á í sínum ræðum, ef við ætlum að halda þeim sama hraða og er á því samfélagi sem við búum í í dag, þeirri fólksfjölgun og þeirri auknu verðmætasköpun sem er í samfélaginu. Allt kallar það á orku. Við höfum talað um það hér á tyllidögum að auka matvælaframleiðslu, auka framleiðslu á grænmeti sem við ræktum í gróðurhúsum eða við ylrækt. Við þurfum orku í þetta allt saman. Það er, held ég, alveg sama hvar við drepum niður, við þurfum alltaf orku til okkar athafna í öllu sem við erum að gera. Í þessu samhengi erum við svo heppin, Íslendingar, að við getum horft til þess að við ætlum okkur að nýta græna orku og þá þurfum við kannski, og ekkert kannski, það er bara þannig, að stíga eitthvað inn í náttúruna einhverjum skrefum. En mikilvægt verður alltaf að ganga eins rólega inn í náttúruna og hægt er til framtíðar til að vernda ósnortna náttúru sem fyrir er.

Virðulegur forseti. Að lokum vil ég bara þakka fyrir þessa umræðu og það verður síðan áhugavert fyrir atvinnuveganefnd að takast á við málið. Við komum til með að senda það út til umsagnar á morgun og fáum til okkar gesti. Eins og kom fram í framsögu hv. þm. Óla Björns Kárasonar er mjög líklegt að málið taki einhverjum breytingum í meðförum nefndarinnar og ég vænti þess sama góða samstarfs innan atvinnuveganefndar og hefur verið í allan vetur við úrvinnslu á þessu máli eins og öllum öðrum málum sem atvinnuveganefnd hefur tekið fyrir og fyrir það ber að þakka því að þetta er þvert á flokka og það standa allir flokkar sem eiga aðild að atvinnuveganefnd að því að leggja þetta mál fram og það er mjög mikilvægt. Það er líka, held ég, hluti af því hvað umræðan hérna í kvöld hefur verið áhugaverð og það hefur verið góð pólitík í þessu, ég held að það sé svolítið mikilvægt, góð pólitík sem eykur á góð skoðanaskipti og gerir það að verkum að vonandi skilum við góðri afurð af okkur fyrir jólin.