154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

raforkulög.

541. mál
[21:14]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Forseti. Ég ætla ekki að lengja mál mitt mikið því það er búið að ræða ansi mikið um þetta mál. Reyndar finnst mér að ansi margt annað hafi verið rætt heldur en akkúrat þetta mál. Ég var farinn að halda að ég þyrfti kannski að rölta yfir á skrifstofu mína og ná í eintak af nefndaráliti fossanefndar frá 1917–1918 og lesa það hér upp þannig að ég tæki við söguskýringum eins og aðrir þingmenn. Mér fannst það vera orðið óþarfi því það sem við erum að fjalla um, eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson nefndi, er að forgangsraða orku til einstaklinga og almennings. Það er mjög mikilvægt að við gerum það því ekki viljum við að við þurfum að hafa rafmagnslaust á ákveðnum tímum dags fyrir ákveðin svæði einfaldlega vegna þess að við eigum ekki nóga orku, sem er einmitt nokkuð sem ýmsir staðir í heiminum hafa þurft að gera. Þegar ég bjó í Afríku var það jafnvel venja að svo væri vegna þess að þar var ekki verið að framleiða nóg af raforku.

Eins og ég sagði, frú forseti, ætla ég ekki að tefja þetta um of. Ég ætla heldur að reyna að drífa mig heim því það verður raforkulaust hjá mér frá miðnætti til kl. 2 í nótt, ekki vegna þess að það sé skortur á rafmagni, sem betur fer, heldur er verið að laga dreifilínurnar í kringum Svartsengi vegna varnargarðanna sem verið er að vinna og því fáum við ekki neitt rafmagn á Suðurnesjunum í tvo tíma. Það er allt í lagi. Við getum sætt okkur við það því það er til að verja Svartsengi. En ég vona svo sannarlega að svo þurfi ekki að vera á hverri nóttu eða á hverjum degi vegna þess að ekki sé nóg af rafmagni.