Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Frú forseti. Ég vil þakka framsögumanni málsins, Líneik Önnu Sævarsdóttur, kærlega fyrir góða yfirferð áðan. Að sama skapi vil ég taka undir með fulltrúa 1. minni hluta, hv. þm. Halldóru Mogensen; margt sem ég get tekið undir í hennar máli. Ég ákvað að vera með meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar á þessu ágæta máli í ljósi þess að við náðum að koma okkur saman um svona helstu meginstef sem okkur þótti skipta máli í nefndarálitinu. Þar kem ég náttúrlega bara úr því umhverfi sem ég hef verið í, sveitarfélagastiginu, varðandi það hvernig við vinnum með persónuupplýsingar í þessum málaflokki, menntaumhverfinu, og hvernig við náum að láta stofnanir njóta góðs af hver annarri innan menntakerfisins, hvort sem þær eru innan sveitarfélaga, hjá ríkinu eða mögulega stundum hjá þriðja aðila, þ.e. einkaaðilum.
Varðandi umfangið á þeim verkefnum sem liggja fyrir hjá nýrri stofnun þá er ég þeirrar skoðunar að það sé almennt séð ómögulegt að njörva niður öll hugsanleg verkefni þessarar stofnunar á þessu stigi. Þetta er umfangsmikill málaflokkur. Mér finnst það ekki ómálefnaleg rök að leggja til grundvallar að það sé mikilvægt, hefði jafnvel verið æskilegt, að setja heildarlög um skólaþjónustu áður en þessi lög komu til skoðunar. Hins vegar fellst ég alveg líka á það að það sé mikilvægt að setja fyrst þessa stofnun á fót sem kemur að því að móta þessa sömu þjónustu. Ég held að þarna séum við einfaldlega að tala um ákveðna stjórnsýslulega bestun, ef ég má taka svo til orða, og ég legg það traust á þá vinnu sem við stöndum frammi fyrir hérna að ég lít ekki á það sem verkefni mitt að finna að því per se.
Það er margt sem bendir til þess að nýja stofnunin muni hafa mjög mikla burði til að halda utan um þau verkefni sem þó liggja fyrir og eru nefnd í almennum athugasemdum greinargerðar og ég ætla ekkert að verja tíma okkar í að endurtaka það sem áður hefur verið sagt um þessi væntanlegu verkefni. Þau eru mikilvæg og þau eru ærin. Ég vona svo sannarlega að þetta verði til réttarbóta fyrir þau verkefni sem hér er staðið frammi fyrir.
Ég verð samt sem áður að nýta tækifærið hérna og lýsa yfir miklum áhyggjum yfir því hvernig ríkisstofnanir vinna saman í aðdraganda jafn mikilvægrar lagasetningar. Ég held að það sé mjög mikilvægt að það komi inn umsagnir þegar fyrir liggja lagafrumvörp, sérstaklega þegar um er að ræða stór stjórnarmál, eða minni þingmannamál ef því er að skipta. Við sjáum að hagsmunasamtök og sveitarfélög nýta þennan vettvang og eiga að nýta þennan vettvang umsagnanna til að benda á það sem betur má fara, til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, koma fyrir nefndina og gera grein fyrir því hvað út af stendur í löggjöf. Þetta þekkjum við sem vinnum við það að setja lögin í landinu.
Ég ætla bara að finna að því hér, ég fer ekki ofan af því, að athugasemdir hinnar sjálfstæðu stofnunar, hinnar mikilvægu stjórnsýslustofnunar, Persónuverndar, eru ekki til þess fallnar, að forminu til en ekki efninu, að búa til réttaróvissu um það hvað stofnuninni er tækt að gera, hvað henni er tækt að vinna með, í því skyni að framkvæma verkefni sín og þessi óvissa lekur niður til stofnananna hjá sveitarfélögunum, eða hjá ríkinu ef um er að ræða framhaldsskóla. Leikskólar, grunnskólar og framhaldsskólar líða fyrir þessa réttaróvissu ef hún er þá til staðar. Við sjáum það bara í þingsal í kvöld að það eru ekki endilega allir á eitt sáttir með það hvernig lagaheimildirnar eiga að virka í reynd.
Ég held að það sé bara alls ekki æskilegt, svo ég taki vægt til orða, að það sé einhvers konar karp á milli ráðuneytis menntamála í þessu tilfelli og sjálfstæðrar stjórnsýslustofnunar, að vera að bítast um það hvernig löggjöf eigi að líta út. Það kallar auðvitað á vinnu, ég veit að ég er að fara fram á mikið þegar ég sem þingmaður í stjórnarandstöðu, eða bara almennt, fer fram á að það sé bara búið að eyða þessari óvissu um lagatæknileg atriði áður en frumvarp er lagt fyrir. Þetta kallar á mikla samvinnu.
Við vitum alveg að Persónuvernd hefur lagt mjög mikla áherslu á persónuvernd barna og það er bara eðlilegt að við nefnum það aðeins hérna í þingsal. Það er meginfókus stofnunarinnar að unnið sé með forsvaranlegum hætti og fyrirsjáanlegum um persónuupplýsingar barna. Það er mjög virðingarvert markmið í sjálfu sér. Ég finn ekki að því efnislega. Mér finnst það ákaflega góð forgangsröðun. Ég hefði hins vegar haldið að það væri betra fyrir þau lög sem verða til í landinu að það liggi þá fyrir fyrirsjáanleiki um það nákvæmlega og skýr rammi um það hvernig stjórnvöld í þessu tilfelli vinna með persónuupplýsingar. Að skila því til þingnefndar að það sé ekki hægt að leggja mat á áhrif á persónuvernd eða vinnsluskrár eða efni frá ráðuneyti í aðdraganda lagasetningar er bara ekki í lagi og ég endurtek það sem hv. þm. Líneik Anna Sævarsdóttir kom inn á með það áðan. Ég er bara ákaflega vonsvikin yfir því að öflug stjórnsýslustofnun með djúpstæða þekkingu á málaflokknum hafi ekki getað sest niður, ég veit alveg að samtöl hafa átt sér stað, að það hafi ekki verið hægt að ná lendingu um það hvernig löggjöfin lítur út.
Þetta veit ég að er daglegt brauð og dagleg verkefni stjórnsýslustofnana, þ.e. persónuverndarstofnana, á Norðurlöndunum. Þar sest fólk niður og reynir að vinna sig að niðurstöðu. Í þessu felst engin þjónkun við ríkisstjórnina eða menntamálaráðuneytið per se. Þetta er bara ábyrgðarhluti fyrir þá stofnun sem hefur þekkingu til að leysa úr því að það skapist einhver vafi um annars vegar tækar vinnsluheimildir, hvort sem það eru almennar eða viðkvæmar persónuupplýsingar, og svo hins vegar meginreglur laganna.
Aftur segi ég að við erum að sýna þessari stofnun mikið traust með því að framkvæma verkefni sem hafa ekki verið njörvuð í stein. Það er ekkert óeðlilegt við það. En við sem höfum unnið í skólaþjónustunni vitum að þarna liggur bara kjarninn í skólastarfi. Það er kannski stóra nýlundan í þessu frumvarpi. Það er verið að móta nýtt umhverfi fyrir fagfólkið okkar þegar kemur að því að innleiða námsgögn, sérstaklega stafrænar kennslulausnir, og það verður að segjast eins og er að það er ekki alltaf óumdeilt hvaða efnistök skólar hafa í kennsluháttum, ef ekki hreinlega kennsluefni. Við sjáum það til dæmis í umræðunni sem skapaðist í haust varðandi hinsegin fræðslu og svo líka bara hreinlega kynfræðslu, efni sem hefur verið frekar óumdeilt í nokkuð mörg ár en hefur komið upp aftur sem ákveðið bitbein andstæðra póla. En það sem kannski fáir vita er að þetta er ekki það sem veldur hinum almenna kennara eða hinum almenna starfsmanni í menntakerfinu daglegum áhyggjum — það er að innleiða kennslulausn, það er að innleiða stafræna kennsluhætti, læra á upplýsingatækni og miðla þeirri þekkingu til barna sem þurfa að nýta þessa tækni í sínu daglega lífi þegar þau verða eldri.
Mér finnst nauðsynlegt að við erum með tvær stórar ákvarðanir Persónuverndar sem varða kennslulausn sem heitir Seesaw. Þetta er annars vegar gagnvart Reykjavíkurborg í lok árs 2021 og svo var það Kópavogsbær sem fékk líka á sig stjórnvaldssekt í maí 2023. Af niðurstöðum þess verður að draga þá ályktun að það sé mat Persónuverndar að sveitarfélögunum, þ.e. grunnskólunum, sé ekkert í sjálfsvald sett að innleiða neinar kennslulausnir þar sem unnið er með persónuupplýsingar barna, jafnvel þótt það sé bara nafn nemandans. Við erum ekki að tala um að það sé verið að vinna með ítarlegar upplýsingar um fólk, enda er það kannski umdeilt, ég ætla ekki að fara „grundigt“ í nákvæmlega þessi mál, það eru áhöld um hvort verið sé að vinna með viðkvæmar persónuupplýsingar. Ég er reyndar ekki þeirrar skoðunar en það er aukaatriði. Persónuvernd segir bara að það sé ekki lagaheimild fyrir þessu og það eru bara ýmsir áhættuþættir þarna líka sem koma til skoðunar og ég segi bara alveg eins og er: Ef við ætlum að treysta algerlega á þetta umhverfi þá er ekki nóg að breyta bara þessum lögum sem við stöndum frammi fyrir núna, við þurfum að ráðast í heildarendurskoðun á námskrám og það er alveg ljóst að almenn markmiðsákvæði í leik- og grunnskólum og í aðalnámskrá eru nokkuð skýr en það nægir ekki í þessu tilfelli. Það er verkefni okkar á þingi að leysa úr þessari flækju, því þetta er mikil flækja og þetta veldur slíkum kvíða við dagleg störf margra kennara að þeim þykir mörgum orðið nóg um. Það eru of mörg dæmi þess að fólk hafi hreinlega hrökklast úr starfi vegna þess að það getur hreinlega ekki leitað sér upplýsinga um það hvernig á að gera þetta rétt, hefur bakað sveitarfélagi sínu sektargreiðslur og það treystir sér ekki til að halda áfram. Við getum eiginlega ekki unnið svona. Ég vona að það komist skila: Þetta er bein afleiðing af því að við eigum ekki samráð í upphafi lagasetningarferlisins. Svona raungerist óvissan. Hún kemur ekki í ljós fyrr en Persónuvernd grípur tækifærið þegar lausn er farin af stað af hálfu aðila sem innleiddi hana og segir: Aha, nú er kominn tími á prófmál. Ég segi bara: Þessari tilraunastarfsemi verður að ljúka, vegna þess að viðfangsefnið er mjög mikilvægt.
Í þessu samhengi er nauðsynlegt að segja að Persónuvernd hefur haft nýtingu skýjalausna til athugunar um margra missera skeið, frumkvæðisathugun um Google sem hófst 2022 og varðar sem sagt grunnskólana í stærstu sveitarfélögunum. Ég geri mér ekki grein fyrir því hvar málið er statt. Það átti að koma niðurstaða úr því núna á haustmánuðum. Við erum enn þá að bíða niðurstöðunnar sem verður örugglega stefnumarkandi fyrir nýtingu á því fyrir grunnskóla því að við erum auðvitað öll af vilja gerð og ég held að það sé ekki til sá aðili sem vill ekki sýna metnað í þessu verkefni eða finnst tíma sínum illa varið í að gera nægilega grein fyrir vinnslu upplýsinga, hvort sem er í vinnsluskrá eða mati á persónuvernd í skólunum. Við vitum öll hvert andlagið er og hvernig mikil rýni á þessu mun skila sér í betri kennslu og meira upplýsingaöryggi fyrir börn en þá verðum við líka að fá leiðbeiningar um það hvernig á að gera þetta frá stofnuninni. Ég ætla að gera þá kröfu til þessarar ríkisstjórnar sem hér hefur tólin og tækin til að koma aðilum saman fyrr í lagasetningarferlinu og skapa nýja hefð um það hvernig við eigum samskipti í aðdraganda jafn mikilvægrar lagasetningar.
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta í bili. Ég vona að ég muni í framtíðinni þurfa að tala sem minnst um núansa persónuverndarlöggjafarinnar hérna í ræðustól á þingi vegna þess að þetta finnst mér hreinlega vera verkefni framkvæmdarvaldsins, að finna út úr þessu, þó að ég vilji ekki útiloka neitt. En þessi umræða hérna um það hvort þessi lög fela í sér einhvers konar heimild eða skyldu til vinnslu persónuupplýsinga — okkar tíma er ekki vel varið. Við eigum að vera að fást við forgangsröðun fjármuna, efnislega umræðu um aðferðir og leiðir við vinnslu persónuupplýsinga en allur efi um það hvort hér sé um að ræða tæka vinnsluheimild — við verðum að geta náð sátt fyrr í ferlinu. Ég veit að ég fer mögulega fram á mikið.
Að öðru leyti þakka ég fyrir ágæta samvinnu í þessu máli og ég hlakka til að fást síðan við þá vinnu sem lýtur að skólaþjónustunni vegna þess að þá held ég að við eigum eftir að takast mögulega á um einstaka atriði, en vonandi ekki.