154. löggjafarþing — 40. fundur,  29. nóv. 2023.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

238. mál
[22:16]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Þetta er mál sem dagaði uppi á síðasta þingi en ég met það svo að þá hafi ekkert verið málinu til fyrirstöðu. Ég trúi ekki öðru en að þetta mál nái fram að ganga í þessari atrennu. Ég hef fengið að sitja í þingmannanefnd um farsæld barna og þar hefur þetta verið rætt mjög ítarlega. Á einföldu máli snýst þetta um að sett verði á stofn Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Menntamálastofnun lögð niður. Með því á að ná því fram að ríkið taki að sér að veita aukna þjónustu við sveitarfélögin auk þess að sjá þeim fyrir besta námsefni hverju sinni, eins og segir í 4. gr. frumvarpsins. Þar segir, með leyfi forseta:

„Verkefni Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu eru m.a. að:

a. styðja, efla og samhæfa menntun, skólaþjónustu og annað skólastarf um land allt, m.a. með almennri og sérhæfðri fræðslu,

b. sjá nemendum í skyldunámi fyrir vönduðum og fjölbreyttum námsgögnum og öðrum nemendum eftir því sem stofnuninni kann að vera falið,

c. byggja upp og halda utan um aðferðir og úrræði fyrir skóla sem styðja við skólastarf og skólaþjónustu, þar á meðal gæðaviðmið, verkferla, verkfæri, matstæki og önnur tæki til skimana og athugana á einstaklingum eða hópum,

d. styðja við innleiðingu stefnumótunar stjórnvalda á sviði menntunar og farsældar barna og ungmenna, þ.m.t. menntastefnu og aðalnámskráa. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu forgangsraðar verkefnum með hliðsjón af þörfum hverju sinni undir yfirstjórn ráðherra.“

Eins og gerist hafa fjölmargar umsagnir borist vegna þessa máls, eða alls 23, og það er eins og oft áður að umsagnaraðilar eru ekki alltaf sammála. Meðal umsagnaraðila er Alþýðusamband Íslands. Þar á bæ hafa menn áhyggjur af framhaldsfræðslunni sem færð var frá menntamálaráðuneytinu yfir til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins við breytingu á skipan ráðuneyta árið 2022. Í álitinu segir, með leyfi forseta:

„Í framkomnum drögum eru framhaldsfræðslu og þeim verkefnum hennar sem áður voru á höndum Menntamálastofnunar hvergi gerð skil og þeim ekki ætlaður staður innan nýrrar Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.“

Ég gat ekki betur heyrt en að í nefndaráliti 1. minni hluta væri þetta nefnt og ég held að það þurfi að gaumgæfa vel hvernig eigi að sinna framhaldsfræðslunni til framtíðar því að hún skiptir auðvitað miklu máli. Ég vil taka undir þessar áhyggjur ASÍ af því að framhaldsmenntun skiptir fólk á vinnumarkaði miklu máli, sérstaklega þá sem hafa litla formlega menntun. Það er hætt við að ef þetta á að vera með þessum hætti geti framhaldsfræðslan lent utan garðs. Þess vegna er mikilvægt að við skoðum stöðu hennar.

Þá hafa einnig hagsmunafélög starfsmanna Menntamálastofnunar, eins og BHM og BSRB, lýst áhyggjum af stöðu hennar og eðlilegt að þessi félög horfi til þeirra við breytingar sem þessar. Í umsögn BHM kemur fram að þau telja að hægt væri að ná sömu markmiðum á annan hátt, eins og segir í umsögn, með leyfi forseta:

„BHM ítrekar enn og aftur þá afstöðu sína að markmiðum frumvarpsins er vel hægt að ná með vægari hætti og með jafnræði að leiðarljósi þar sem starfsfólki stendur til boða að fylgja verkefnum sínum til nýrrar stofnunar eða til ráðuneytisins. BHM hafnar því alfarið að það sé í samræmi við jafnræðissjónarmið að segja upp starfsfólki Menntamálastofnunar og gera því að sækja um að sinna áfram sömu verkefnum hjá nýrri stofnun. Hvetur BHM til þess að áformum ráðherra verði breytt þannig að tryggja megi réttarstöðu starfsfólks [Menntamálastofnunar]. Við þá breytingu verði horft til ákvæðis til bráðabirgða I í gildandi lögum um Menntamálastofnun þar sem segir að starfsfólki verði tryggð störf hjá nýrri stofnun en að það kynni að þurfa að hlíta breytingum á starfi eða starfsstigi í samræmi við nýtt skipurit og starfslýsingu. Verði það ekki gert er það lágmarkskrafa að mati BHM að tryggt verði að það starfsfólk sem sækir um og hlýtur starf hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu haldi við umskiptin áunnum kjarasamningsbundnum réttindum frá störfum sínum hjá Menntamálastofnun.“

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að leggja mat á hvora leið eigi að fara í þessu tilviki en legg áherslu á að reynt verði að ganga frá starfslokum af virðingu við þá sem ekki verður boðið starf hjá nýrri stofnun.

Virðulegur forseti. Mig langar að lokum að nefna námsgagnagerð, sem er eitt af hlutverkum nýrrar stofnunar, eins og segir í 4. gr. frumvarpsins. Þar skiptir máli að börn fái námsgögn við hæfi. Það er vissulega áskorun að sinna því þar sem aðstæður og geta barna geta verið mismunandi og eru það. Því vil ég leggja áherslu á að horft sé til allra átta þegar kemur að námsgagnagerð. Þó að ný stofnun beri höfuðábyrgð á því að börn fái námsgögn við hæfi tel ég rétt að stofnunin leiti einnig til einkaaðila eftir námsgögnum. Við eigum fjölmarga sérfræðinga sem sinna menntun með ýmsum hætti og búa margir hverjir yfir þekkingu og tækni sem stofnun eins og þessi ætti að geta nýtt sér. Það þarf ekki allt að gerast inni á borði stofnana í opinberri eigu.

Að því sögðu, virðulegur forseti, tel ég að þetta frumvarp sé af hinu góða og mun styðja það þegar málið kemur til afgreiðslu í þinginu.