stuðningur íslenskra stjórnvalda við UNRWA.
Herra forseti. Öll viljum við væntanlega hjálpa fólki í stríðshrjáðum löndum eins og kostur er. Ekki alls fyrir löngu skrifaði hæstv. ráðherra á Twitter- eða X-síðu sína að frá 7. október, frá því að hryðjuverkin voru framin í Ísrael hefðu íslensk stjórnvöld aukið stuðninginn við UNRWA stofnunina um sem nemur 225 millj. kr. Þá hafði þegar komið fram í hinum ýmsu fjölmiðlum, m.a. í Morgunblaðinu, að þessi hjálparsamtök, sem eru það eflaust sums staðar, væru undir óeðlilega mikilli stjórn Hamas, hryðjuverkasamtakanna á Gaza, sem misnotuðu þessi samtök, réðu þar inn sitt fólk, hefðu af þeim peninga og jafnvel að í skólum sem þessi stofnun rekur væri börnum kennt að hata gyðinga og gera það að sínu helsta markmiði að drepa þá sem flesta. Fleiri dæmi mætti nefna. Þetta hefur verið töluvert í umræðu að undanförnu og nú hafa ýmis ríki Evrópu og meira að segja Evrópusambandið sjálft ákveðið að endurmeta stuðning sinn við þessa stofnun og hvernig hann raunverulega nýtist. Í Morgunblaðinu kom fram að ekkert lægi fyrir um það hvað yrði um styrkina sem frá Íslandi koma. Hyggst hæstv. ráðherra ráðast í tilraun til að kanna hvað verður um það fjármagn sem héðan kemur? Mér þætti ekki gott ef skattfé Íslendinga rennur að einhverju leyti til alræmdustu hryðjuverkasamtaka samtímans. Telur ekki hæstv. ráðherra a.m.k. tilefni til að skoða þetta og jafnvel velta fyrir sér öðrum leiðum, til að mynda að kaupa lyf og senda þau beint sem þróunaraðstoð?