154. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2023.

brottvísun flóttafólks frá Palestínu.

[15:29]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Það eru að sjálfsögðu allir sammála um að það þurfi að vera skýrar reglur um réttindi fólks á flótta sem hingað sækir. Við erum vissulega ekki alltaf sammála um hvernig þær eiga að vera en ég bind miklar vonir við að þverpólitískur hópur, skipaður af hæstv. forsætisráðherra, geti a.m.k. ná breiðari sátt. Það væri mikils virði. En svo koma upp sérstakar aðstæður sem við ættum ekki að þurfa að takast á við. Þannig myndaðist t.d. fullkomin eining um að opna hingað leið fyrir úkraínskt fólk í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Nú horfum við líka á ömurlegar aðstæður palestínsku þjóðarinnar vegna árása á Gaza. Nú vill svo til að það eru palestínskir einstaklingar hér sem hafa leitað eftir vernd og sumum þeirra hefur verið synjað. Meðal þeirra eru tveir fylgdarlausir drengir, 12 og 14 ára, sem hafa aðlagast vel, ganga í skóla, spila fótbolta og líður vel á Íslandi. Fjölskylda yngri drengsins er á vergangi á Gaza eftir að heimili þeirra var sprengt í loft upp og það hefur reynst erfitt að ná sambandi við fjölskyldu hans. Nú stendur sem sagt til að senda þá til Grikklands þar sem aðstæður flóttafólks eru algjörlega óviðunandi. Herra forseti. Hér er um að ræða börn sem stendur til að senda fylgdarlaus úr landi. Mig langar því að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort þetta verði virkilega látið gerast á hennar vakt eða hvort hún muni beita sér á einhvern hátt eins og hún gerði svo röggsamlega fyrir flóttafólk frá Úkraínu.