154. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2023.

Flutningur barna úr landi og réttindi þeirra samkvæmt alþjóðlegum mannréttindasamningum.

[15:41]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, það er ekki auðvelt að ræða einstaklingsmál hér í óundirbúnum fyrirspurnum enda var það ekki ég sem setti einstaklingsmál á dagskrá heldur var það hv. þingmaður og fyrirspyrjandi. Ef hv. þingmaður vill að ég dragi einhverjar almennar ályktanir af þessu — sem auðvitað rímar við það sem ég er að vinna að sem ráðherra mannréttindamála og það er m.a. ástæðan fyrir því að ég hef lagt fram frumvarp um mannréttindastofnun, sem ég vona svo sannarlega að Alþingi afgreiði — þá myndi ég telja, í ljósi þess að um er að ræða milliríkjamál sem hv. þingmaður vekur hér máls á, að það þurfi auðvitað að taka það til sérstakrar skoðunar hvort raddir barna séu nægjanlega virtar, hvort nægilegt tillit sé tekið til skoðana þeirra í málum sem við hér á landi erum með ákveðið verklag í og hvort við teljum að þau lönd sem við erum í samstarfi við í gegnum framsalssamninga og aðra alþjóðlega samninga séu með sambærilega túlkun á mati á því hvað börnum er fyrir bestu sem við höfum tileinkað okkur hér á Íslandi, til að mynda miðað við ákveðinn aldur. Ég held að þetta kalli á sérstaka umræðu um þau mál á milli ríkja þannig að það sé sambærilegur skilningur milli ríkja á því hvernig eigi að tryggja að á röddum barna sé tekið mark í svona málum.