154. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2023.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

238. mál
[15:55]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Í þessari breytingartillögu er lagt til að sett verði á fót vísindaráðgjafarnefnd á sviði menntamála. Í frumvarpi um Menntamálastofnun var ráðgjafarnefnd hagsmunaaðila. Hér er lagt til að það verði vísindaráðgjafarnefnd skipuð fremstu vísindamönnum sem völ er á á heimsvísu. Eitt er víst að í menntamálum og varðandi læsi, byrjendalæsi frá landsbyggðarháskóla hér, erum við ekki að beita fremstu vísindum. Við verðum að hætta að nota heimatilbúið kukl sem stenst ekki fremstu vísindi í heimi. Aðrar þjóðir hafa lögfest það hvernig á að kenna börnum að lesa með bókstafa- og hljóðaaðferðinni. Það er enginn sem lærir að lesa nema skilja það forritunarmál sem stafirnir eru, að a hljóði a, b hljóði b o.s.frv. Við verðum að nota fremstu vísindi. Það er gert með þessari breytingartillögu og ég skora á þingheim að samþykkja það. Við getum ekki verið einangruð eyja uppi í Norður-Atlantshafi og þóst vita allt best þegar fremstu menningarþjóðir beita fremstu vísindum en við ekki. (Gripið fram í.)