Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Virðulegi forseti. Hér er verið að leggja til að þegar haft er samráð við börn varðandi störf hinnar nýju stofnunar sé líka haft samráð við foreldra, þannig að 3. mgr. 3. gr., um samvinnu og samráð, myndi þá vera eftirfarandi, með leyfi forseta:
„Miðstöð menntunar og skólaþjónustu skal hafa samráð við börn og ungmenni um verkefni stofnunarinnar og foreldra þeirra eða forsjáraðila eftir því sem við á.“
Breytingartillagan er þá þannig: „Og foreldra þeirra og forsjáraðila eftir því sem við á.“
Þetta byggir á tilvísun til 12. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og 28. gr. barnalaga þar sem segir að ein af forsjárskyldum foreldra sé að sjá til þess að börn mennti sig. Þetta er líka í samræmi við lög um leikskóla, í samræmi við lög um grunnskóla og í samræmi við lög um framhaldsskóla þar sem talað er um samráð við foreldra. Það væri óeðlilegt ef þessi breytingartillaga væri ekki inni með vísan til þeirra laga sem ég nefndi. — Ég segi já.