154. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2023.

tóbaksvarnir.

226. mál
[16:05]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þó að ég muni ekki styðja þetta mál ef fram heldur sem horfir þá styð ég þær breytingar sem hér hafa verið gerðar á málinu. EES er vissulega mikilvægasta viðskiptasamband sem við eigum en það er þó ekki alveg fullkomið. Sá angi tilskipunarinnar sem þetta mál byggir á er að mínu mati órökstuddur og sýndarlýðheilsuaðgerð þar sem það hefur ekkert að gera með tilgang frumvarpsins um að stemma stigu við tóbaksnotkun ungmenna, sem er frábært markmið. Mentolsígarettur hafa þar afskaplega lítið vægi ef eitthvert. Mér þykir þetta því vont mál, eða þessi angi málsins öllu heldur, og um leið og ég biðst fyrir hönd Alþingis afsökunar gagnvart vinkonum mínum í saumaklúbbum landsins og öllum djammreykingarmönnunum langar mig að segja við þau: Hamstrið mentólsígaretturnar ykkar næstu fjögur ár. Við fengum það þó í gegn að lengja þetta um fjögur ár. Þær ku geymast ágætlega í frysti. [Hlátur í þingsal.]