154. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2023.

tóbaksvarnir.

226. mál
[16:06]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Hér erum við að samþykkja tilskipun að meginefni um sameiningu ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna sem lýtur að framleiðslu, kynningu og sölu á tóbaki. Auðvitað er lykilatriðið hér forvarnir og það að stemma stigu við tóbaksnotkun ungmenna. Það er og á ávallt að vera leiðarljós í okkar umfjöllun um þessi mál. Ég vil taka undir þau sjónarmið nefndarinnar sem koma fram í nefndaráliti, að einfalda til framtíðar litið og fella lög um nikótínvörur undir tóbaksvörur. Ég held að það yrði mjög mikilvægur áfangi í forvarnalegu tilliti. Ég ætla ekki að gera neinar athugasemdir sérstaklega við breytingar á frumvarpi sem öll nefndin kom sér saman um að gera en þakka fyrir þá vinnu og þá samstöðu sem birtist í því nefndaráliti sem liggur til grundvallar.